Eimreiðin - 01.10.1945, Síða 17
EIMREIÐIN
Október—dezember 1945
LI. ár, 4. hefti
Við þjóðveginn.
17. nóvember 1915.
Smásjá stórveldanna var oft nefnd í ræðu og riti hér á
landi styrjaldarárin, en sjaldnar mi. Það verkfæri er þó enn í
notkun og verður. íslenzkt stjórnmálalíf er stöðugt undir
smásjánni. Og margt kemur skrítið í Ijós. Fyrirferðarmest
síðustu vikurnar er hinn ákaflegi vindmyllubardagi, er staðið
hefur út af orðrómi, sem enn fæst ekki staðfestur né aftur
rekinn af réttum aðilum. Ef til vill verður bó búið að gera
annaðhvort, jtegar línur jtessar koma fyrir sjónir almennings.
Fyrra hluta októbermánaðar gaus orðrómurinn upp, um
að eitthvað mikilvægt væri á döfinni í íslenzkri utanríkis-
pólitík. Sögurnar héldu áfram á sveimi — og svo er enn.
Fólkið spyr hvað sé hæft í orðrómnum og hvaðan liann sé
kominn. Sumir halda, að lekið liafi frá einhverjum j)ing-
manna. I jíinginu var haldinn lokaður fundur rétt eftir að
j)að kom saman 1. október síðastliðinn. Víst er um j)að, að
einhvern veginn kom sú fregn á loft, að bar liefði verið til
umræðu tilboð frá Bandaríkjastjórn um áframhaldandi lier-
vernd liér á landi, — leigu á herstöðvum hér eða eitthvað
því um líkt. Smámsaman magnaðist fregnin eins og fjöðrin
í ævintýrinu hans Andersens. Yfir j)jóðina tók að rigna skeyt-
um um það, hvað sagt væri í Moskva, Stokkhólmi, Kaup-
mannahöfn og jafnvel víðar um atferlið hér heima í þessu
mikilvæga utanríkismáli. Stundum fylgdu ráðleggingar og
eggjanir. Efnt var til fimdahalda í Reykjavík og skeleggar
samþykktir gerðar í flokksfélögum og meðal stúdenta. Má
það öllum gleðiefni verða, liversu vígreifir íslendingar gerast