Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1960, Síða 18

Eimreiðin - 01.05.1960, Síða 18
106 EIMREIÐIN Nú liðu enn tíu ár. Og þau ár voru hjá mér tími mikils lestrar, umbrota og hugsunar. Ég las ótal skáldrit ýmissa höfunda og þjóða, las um bókmenntir, fagurfræði, heimsspeki og þjóðfélagsmál. I bókmenntum varð ég ákveðinn frjálshyggjumaður og taldi, að persónuleg list ætti að ganga fyrir áróðri. Þó er það undarlega, næstum furðulega, samræmt, sem við Einar Kvaran sögðum um hlutverk skáldskaparins, ég heima á Seyðisfirði á þriðja tug aldar- innar, hann vestur í Ameríku löngu fyrir aldamót. Hann sagði, og ég hafði þá ekki hugmynd um, að hann hefði sagt það: „Oss er sannarlega ekki ljóst, á hverju skáldskapur á að grund- vallast, ef hann á ekki að grundvallast á lífsskoðun höfundar, hver sem hún nú er. En því er svo varið, að allt, sem mönnum er heilagt, á einhvern rétt á sér. Því aðeins er það mönnum heilagt, að það á djúpar rætur í lífi þjóðanna og einstaklinganna og fullnægir ein- hverri þörf hjartans. En af öllu hinu dýrmæta hlutverki skáldsins er það dýrmætast og háleitast að læra að skilja lífið, líf þjóðarinnar og einstaklingsins, rannsaka hjörtun og nýrun eftir því sem oss skammsýnum mönnum er auðið . . .“ Sjálfur sagði ég svo á Seyðis- firði aldarfjórðungi síðar um hlutverk skáldsins: „Þér eigið að fara inn í hvert hús, inn á hvern bæ, inn í hvert hreysi, kenna þjóðinni með því að draga fram kosti hennar og galla, en einkuna með því að sýna fram á alls staðar og í öllu eitthvert gildi, einhvern vísi að gróandi þroska, heilbrigðu og náttúrlegu hugsanalífi- Ég hafði nú lesið rök nokkurra vitrustu og gagnrýnustu vísinda- manna 19. aldarinnar um sálarrannsóknir, manna, sem tóku að kynna sér þær sumir hverjir af andúð á hjátrú og hindurvitnum, hinir beinlínis ákveðnir í að afhjúpa svik og pretti auvirðilegra loddara. Og ég hafði komizt að raun um, að einmitt þessir menn hefðu sannfærzt, sannfærzt um það, að annað líf væri eftir þetta og látnir menn gætu látið til sín heyra. Svo spurði ég þá sjálfan mig, knúinn þeirri ábyrgðar- og skyldutilfinningu, sem ávallt hafðt átt rík ítök í mér: Þekkingarlaus og í blindni trúir þú þeim vis- indalegu staðreyndum, sem viðurkennt er að þessir og aðrir vís- indamenn hafa uppgötvað á sviði hinna svokölluðu raunvísinda hví þá ekki að trúa þeim líka á þessum vettvangi? En ég gat ekkt fallizt á réttmæti þess, að rithöfundur notaði svokölluð dularfull fyrirbrigði til að rökstyðja veigamikil hughvörf — jafnvel þátta- skil í lífi persóna sinna, svo sem Einar Kvaran gerði í sögum sín- um allt frá Sálin vaknar til Sigríðar á Bústöðum og Móra — °S
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.