Eimreiðin - 01.05.1960, Blaðsíða 96
Eimreiðin hefur fengið upplýs-
ingar hjá nokkrum bókaforlögum
um helztu bækurnar, sem væntan-
legar eru út á þessu ári. Er hér að
vísu ekki um neina tæmandi upp-
talningu að ræða, en á þessu yfirliti
má sjá, að von er margra athyglis-
verðra og góðra bóka á markaðinn
í haust.
Almenna bókafélagið hefur með-
al annars í undirbúningi þessar
bækur : Gróður jarðar eftir, Knut
Hamsun í þýðingu Helga Hjörvar.
Myndabók um íslenzka jökla, og
hefur Jón Eyþórsson veðurfræðing-
ur umsjón með útgáfu þeirrar bók-
ar. Þá kemur út hjá forlaginu bók
eftir Karl Strand lækni, er mun
bera nafnið Hugur einn það veit,
og fjallar um reynslu læknisins í
sérgrein hans. Loks má nefna
hljómplötuútgáfu hjá Almenna
bókafélaginu. Er það hljómplata
með 35 gömlum íslenzkum þjóðlög-
um er Engel Lund syngur, en plöt-
unni fylgir nótnahefti með vísun-
um og lögunum.
Bókfellsútgáfan gefur út annað
bindið af ævisögu Kristmanns Guð-
mundssonar, og fjallar þessi hluti
um dvöl skáldsins í Noregi. Ekki
er fullráðið um fleiri bækur hjá for-
laginu.
Bókaútgáfa menningarsfóðs hef-
ur þegar ákveðið flestar útgáfubæk-
ur sínar á árinu. Þar má nefna Rit'
safn Theodóru Thoroddsen, áður
prentuð ljóð, þulur og smásögur,
og endurminningar skáldkonunnar,
sem ekki hafa áður birzt. Sigurður
Nordal próíessor sér um útgáfuna
og ritar ýtarlega ritgerð um Theo-
dóru Thoroddsen og skáldskap
hennar. Væntanlegt er ljóðasafn
eftir Jakob Jóh. Smára, og er það
endurprentun á eldri ljóðabókum
skáldsins, Kaldavermsl, Handan
storms og strauma og Undir sól
að sjá. Ný skáldsaga kemur út hjá
forlaginu eftir Stefán Jónsson rit-
höfund, og skáldsaga eftir Franz
Kafka í þýðingu Hannesar Péturs-
sonar skálds. í Smábókaflokki
Menningarsjóðs kemur út úrval
ljóða eftir Bjarna Grímsson og flein
17. aldar skáld í útgáfu Jóns
Samsonarsonar. Meðal fræðirita er
Menningarsjóður gefur út verður
rit eftir Finnboga Guðmundsson
prófessor um þýðingar Sveinbjarn-
ar Egilssonar, og er þetta doktors-
ritgerð, sem Finnbogi hyggst verja
við Háskóla íslands í haust eða á
vetri komanda. Ennfremur ritgerð
eftir Bjarna Einarsson, fyrrum lekt-
or við Kaupmannahafnarháskóla.