Tímarit lögfræðinga - 01.10.1953, Qupperneq 58
248
Skottulcelcningar i íslenskum lögum.
einhverra þeirra brota, sem í 1.—7. tölul. 15. gr. laga nr.
47/1932 greinir, verði talin refsiverð, þó að tilraun til ann-
arra brota verði talin refsilaus.
E. Ákvæði almennra hegningarlaga um hlutdeild í brot-
um, sbr. 22., 23., og 254. gr., taka ekki til annarra brota en
þeirra, sem lýst er í hegningarlögunum. Verður því einnig
hér athugandi, hvort hlutdeild verði refsiverð. Að því leyti
sem ekki er leyst úr þessu atriði í sjálfum lögum nr. 47/
1932, getur komið til mála að beita ákvæðum almennra
hegningarlaga analogice, og má um það vísa til ummæl-
anna hér að framan um refsiverðleik tilraunar. Eins og
áður getur, felur brot það, sem lýst er í 7. tölul. 15. gr. laga
nr. 47/1932 í sér hlutdeild í einni tegund brota þeirra, sem
í 15. gr. téðra laga eru talin til skottulækninga. En vitan-
lega getur verið um hlutdeild að tefla í fleirum þeirra
brota, sem skottulækningar teljast í 15. gr. laganna. 1 4.
málsgr. 18. gr. laganna getur viðurlaga á hendur lækni
eða þeim, sem hefur lækningaleyfi, fyrir „hlutdeild í
skottulækningum", og eru það einmitt sömu brotin sem í
7. tölul. 15. gr. segir. Lögin segja ekkert um aðra hlutdeild.
En hæpin er ályktun þar af í þá átt, að annars konar hlut-
deild sé refsilaus, fyrst hennar er ekki getið í lögunum.
Þau sýnast ekki vera samin af þeirri lögfræðilegu þekkingu
og nákvæmni, að ályktun e contrario frá fyrirmælum
þeirra geti verið örugg.
Það mun að vísu ekki koma til mála að refsa þeim, sem
skiptir við „skottulækni", sem með þeim skiptum verður
sekur við citthvert ákvæði 15. gr. Þar mun regla refsifræði
um concursus necessarius koma til greina. Sjúklingur, sem
lætur „skottulækni" stunda sig, verður refsilaus af því. Sá,
sem fær nautnalyf eða umsögn til gyllingar vöru eða sá,
sem fær lyf í óhófi, verður víst ekki refsisekur fyrir það.
Aftur á móti kann að vera vafasamara um aðstoðarmenn
„skottulæknis" aðra en þá, sem í 7. tölul. 15. gr. segir.
Verður t. d. aðstoðarstúlka á lækningastofu manns, sem
stundar þar að vitund hennar „skottulækningar", refsisek
fyrir aðstoð sína? Til samanburðar má nefna það, að búð-