Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 18

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 18
ins, skal hann leggja fram skilríki fyrir því, að hann hafi samvizkusamlega tekið þátt i æfingum i bókhaldi, vélritun og lögfræðilegri skjalaritun. Enn fremur skai hann leggja fram skilríki fyrir því, að hann hafi unnið á lögfræðiskrifstofu undir liandleiðslu lögfræðings með embættispróf, um a.m.k. tveggja mánaða skeið.“*) Með auglýsingu nr. 97, 21. sept. 1949, voru enn gerðar all- verulegar brevtingar á tilhögun náms og prófa í lagadeild. Akvæðin eru á þessa leið: í laga- og hagfræðideild eru kenndar þessar greinar: 1. Fjármunaréttur. 2. Sifjaréttur, erfðaréttur og persónuréttur. 3. Stjórnlagafræði og stjórnarfarsréttur. 4. Refsiréttur. 5. Réttarfar. 6. Réttarsaga. 7. Sjóréttur og félagaréttur. 8. Þjóðaréttur og alþjóðlegur einkamálaréttur. 9. Æfingar í úrlausn raunhæfra verkefna. 10. Almenn lögfræði. 11. Lögfræðileg skjalaritun. Skriflegar æfingar skulu vera i þeim greinum, sem sérstakt skriflegt próf er lialdið í. Embættispróf í lögfræði. Embættisprófinu skal skipt í tvennt, fyrra hluta og síðara hluta. Prófgreinar í fyrra hluta eru þessar: *) Reglugj. nr. 8/1912 er dags. 9. okt. 1912 og gefin út af ráð- herra. 1 upphafi hennar segir: „Samkvæmt þegnlegum tillögum stjórnarráðs Islands hefur Hans Hátign konunginum í dagþóknazt allra mildilegast að staðfesta eftirfarandi Reglugjörð fyrir Há- skóla Islands". Auglýsing nr. 47/1936 er gefin út af ráðherra 5/3 1936, en ekki verður séð af stjórnartíðindum, að hún hafi verið staðfest af konungi, svo sem vera bar. Agnar Kl. Jónsson getur hins vegar í inngangi að lögfræðingatali sínu, að breyt- ingarnar hafi hlotið konungsstaðfestingu 28. okt. 1935. 64 Tímarit lögfrrrðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.