Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Page 38

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Page 38
en hér var komið, og hvort tveggja, kennsla prófessor- anna og aðstaða stúdentanna hlaut að mótast af þessum nýju viðhorfum. Að þvi er snertir laganám íslendinga og lagaframkvæmd hér, urðu nú og mikil straumhvörf. Um þetta leyti má telja, að hinu svonefnda Jónsbókar- tímabili sé að ljúka. Heilir bálkar Dönsku og Norsku laga voru lögfestir um þetta levti og fjöldi nýrra tilskip- ana voru gefnar út, en allt þetta olli mikilli réttarrösk- un hér, eins og kunnugt er. Þær brevtingar, sem á lög- gjöfinni urðu um þetta leyti voru margar hverjar, a.m.k. á fræðilegum grundvelli og í anda hins nýja tima. Þær liorfðu og til bóta að ýmsu leyti. Jónshókarrétturinn hafði þó á sumum sviðum betur, enda voru menn fast- heldnir á hann. En hvort sem mönnum líkaði betur eða verr, var það staðreynd, að tvö, að ýmsu levti ólík réttar- kerfi, voru í gildi hér, og þá nauðsvn að þekkja ekki aðeins hinn gamla rétt, heldur og hinn nýja, og kunna þannig skil á því, hvað væru lög um þau málsefni, sem lej'sa þurfti úr. Hér á landi var því, ekki siður en annars staðar, þörf á því, að þeir, sem um lögfræðileg efni fjölluðu, fengju fræðilega þekkingu, enda varð og sú raun á, því að eflir tilkomu tilsk. 1736 fer að bera á því, að Islendingar nemi lögfræði við Hafnarháskóla. Þau réttindi, sem próf- ið skapaði, hafa og að sjálfsögðu valdið hér miklu um. Hinn fræðilegi áhugi gerði og vart við sig á innlendu sviði, að visu að hvötum konungs. Hann kom fram í starfinu að lagaverkinu svonefnda, sem fyrr er getið. Að því var ekki hægt að vinna, nema með þvi móti að kanna islenzkan rétt og bera hann saman við Dönsku og Norsku lög. Fyrir þennan tima hafði að vísu verið nokkur hreyfing á því, hjá dönsku stjórninni, að N.L. vrðu lögfest hér. En veruleg hreyfing komst ekki á þetta mál fyrr en Rantzau stiptamtmaður fór að láta til sín taka árið 1751. Var þá talin nauðsyn, sem og rétt var, að ýmsa undirbúnings- vinnu þyrfti að inna af hendi, og að islenzkir menn yrðu 84 Tímctril löyfræöinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.