Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Qupperneq 53
og eru sliks engin dæmi önnur um akademíska stétt,
jafnvel ekki liér á landi, hvað þá í grannlöndunum. Ork-
ar ekki tvímælis, að próf. Ölafur hefur mótað íslenzka
lögfræðinga í rikara mæli en nokkur maður annar. Hafa
íslenzkir lögfræðingar enda iðulega sýnt, hversu mikils
þeir virða hann. Á merkum afmælum hans hafa þeir
ávallt stofnað til samsæta honum til sæmdar. Þeir gáfu
út afmælisrit, sem helgað var honum, á sjötugsafmæli
hans 1955, og hann er eini heiðursfélagi Lögfræðingafé-
lags Islands. Naut hann sín ávallt vel í hópi nemenda
sinna, og vissulega þótti oss vænt um að hafa liann með-
al vor.
Innan Háskóla íslands naut próf. Ólafur mikillar virð-
ingar samkennara sinna. Fólu þeir honum rektorsem-
bætti þrívegis, 1921—22, 1931—32 og 1945—48, og hann
var um árabil formaður stjórnar happdrættis háskólans.
Yfirleitt var hann mjög sóttur að ráðum í málefnum
háslcólans, og voru tillögur hans ávallt mikilsmetnar.
Prófessor ölafur gegndi oft störfum varadómara og
setudómara í Hæstarétti, og var oftar nefndur til þeirra
starfa en nokkur annar. Var liann og um liríð settur
hæstaréttardómari, á árabilinu 1923—26 og siðan 1930
—32 og 1933—34. Hann átti um langt árabil sæti í
merkjadómi Reykjavíkur. Eru dómstörf merkur þáttur
í starfi lians, þótt ekki verði frekar um þau fjallað hér.
Hann hefur og starfað mjög að samningu lagafrum-
varpa, og haft með því heillavænleg áhrif á islenzka
löggjöf.
Prófessor Ólafur Lárusson starfaði mikið í ýmsum
félögum og gegndi þar trúnaðarstörfum. Hann var meðal
stofnenda Visindafélags íslendinga 1. des. 1918, og var
forseti þess 1944—47, í stjórn Hins islenzka fornleifa-
félags átti hann sæti i nærfellt 40 ár, og hann átti sæti
i stjórn Hins íslenzka fornritafélags frá stofnun þess
1928. Þá hefur hann átt sæti í stjórn Sögufélagsins, i
stjórn Hins islenzka bókmenntafélags og Ferðafélags ís-
Tímarit lögfræðinga
99