Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Blaðsíða 55
nemendur lians skipti hitt og ekki minna máli, að utan
kennslustunda nutum við oft handleiðslu hans og holl-
ráða. Margir nemendur hans hafa og átt hann að trún-
aðarmanni og ráðgjafa löngu eftir að skólavist lauk. Ætla
ég, að svo náin tengsl milli kennara og nemenda séu
fágæt.
IV.
Prófessor Olafur Lárusson hefur verið mikill afkasta-
maður um ritstörf. f afmælisriti hans frá 1955 er skrá
um flest rit hans og ritgerðir. Eftir að sú skrá var gerð,
birtist m. a. eftir hann rannsókn hans á mannanöfnum
í manntalinu frá 1703 og ritið Lov og ting, sem hefur
að geyma nokkrar veigamiklar ritgerðir hans í norskri
þýðingu. Sýnir sú ritaskrá ljóslega, hve fjölgáfaður hann
var og hversu fjölbreytt rannsóknarefni hans voru.
Rit hans eru einkum á sviði lögfræði, þar á meðal rétt-
arsögu, sagnfræði og mannfræði. Um rit hans í sagn-
fræði og mannfræði hefur lieimspekideild Háskóla fs-
lands kveðið upp ótviræðan dóm, er hún sæmdi hann
doktorsnafnbót i heimspeki. Segir m. a. svo i formála
deildarinnar fyrir doktorskjöri: „Allar rannsóknir hans
bera vitni um frábæra þekkingu, vandvirkni og glögg-
skyggni á stór atriði sem smá.“ Munu þess fá dæmi, að
prófessor í lögfræði vinni sér til slíkrar sæmdar með
verkum sinum i annarri fræðigrein.
Rit og ritgerðir próf. Ölafs i lögfræði eru flest á vett
vangi fjármunaréttar og réttarsögu, en þó eru til rit-
gerðir eftir hann um almenn efni, þ. á m. ritgerð hans
i Vöku um lögbók íslendinga, þar sem hann hvetur til
þess, að íslendingar setji sér lögbók. Höfuðrit hans í
fjármunarétti eru Fyrirlestrar í eignarrétti, Ivaflar úr
kröfurétti, Vixlar og tékkar og Sjóréttur, en auk þess
hefur hann ritað margar ritgerðir um einstök, afmörkuð
verkefni i þessari grein. í ritum um fjármunarétt kemur
glöggt fram frjálslyndi hans og félagshyggja. Hann hafn-
Tímarit lögfræðinga
101