Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Blaðsíða 70
eru i sáttmálanum. Það er aðeins, ef þetta ber ekki ár-
angur, að ákvæði sáttmálans um dómstólinn koma til
framkvæmda. Og jafnvel þá kemur málið ekki sjálfkrafa
beint fvrir dómstólinn. Nefndin á að gefa skýrslu og
láta i ljós álit sitt á því, hvort málsatvik þau, sem upp-
lýst eru, leiði í ljós brol á sáttmálanum. Henni er einnig
heimilt að gera þær tillögur, sem hún telur við eiga.
Þessi skýrsla skal send Ráðherranefnd Evrópuráðsins.
Ef málinu er ekki skotið til dómstólsins innan þriggja
mánaða, frá þvi að skýrslan var send ráðherranefndinni,
skal hún úrskurða með tveim þriðju liluta atkvæða, hvorl
brot liafi verið framið og hvaða ráðstafanir skuli gerðar
til úrbóta. Lögsaga dómstólsins tekur því einungis til
mála, sem skotið liefur verið til hans í stað ráðherra-
nefndarinnar. f 48. gr. sáttmálans er ákveðið hverjir
geti lagt mál fvrir dómstólinn, en það eru: a) Mann-
réttindanefndin, b) aðildarríki, þegar þegn þess er tal-
inn órétti beittur, e) aðildarriki, sem visaði málinu til
nefndarinnar og d) aðildarrílci, sem kvörtun befur ver-
ið beint gegn. Þetta er þó aðeins unnt, ef því eða þeim
aðildarrikjum, sem hlut eiga að máli, sé skylt að hlita
lögsögu dómstólsins eða annars kostar samþykkja það.
Sérhvert aðildarríki getur livenær sem er, lýst sig ipso
facto og án sérstaks samnings, bundið við lögsögu dóm-
stólsins í öllum málum, sem varða skýringu og fram-
kvæmd sáttmálans. Þessar yfirlýsingar má gefa skilyrðis-
laust eða með skilyrði um gagnkvæmi af hálfu nokkurra
eða nánar tiltekinna aðildarríkja, eða um tiltekið tíma-
bil. Fram að þessu liafa flestar þessar yfirlýsingar verið
tímabundnar, en engin með skilvrði um gagnkvæmi.
Reglurnar um lögsögu (jurisdiction) dómstólsins virðast
vera skýrar. Er Mannréttindadómstóllinn miklu betur
settur að þessu levti en Haagdómstóllinn, sem eyðir stór-
um liluta af tíma sínum við að fást við það efni. Sam-
kvæmt því, sem nú var lýst, hafa einungis aðildarríki
og nefndin rétt til að leggja mál fyrir dómstólinn. Ein-
110
Tímarit lögfræðinga