Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 82

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 82
Lögmannafélag Islands 50 ára Hinn 11. des. 1961 varð Lögmannafélag Islands 50 ára, og var þess minnzt með veglegu liófi að Hótel Borg. Félagið var upphaflega stofnað sem iiagsmuna- og menningarfélag málflutningsmanna. En um langan ald- ur var það liin einu félagsbundnu samtök löglærðra manna hér á landi og var þvi merkisberi íslenzkrar lög- fræðingastéttar og að ýmsu leyti fvrirsvari fyrir liana alla. Forgöngumenn að stofnun félagsins voru þeir Eggert Claessen hæstaréttarlögmaður og Sveinn Björnsson, síð- ar forseti íslands. Til fróðleiks og gamans verða hér birtar tvær fyrstu fundargerðir félagsins, en þær eru á þessa leið: „Ár 1911, hinn 27. nóv., var fundur haldinn á Hótel Reykjavik af málfærslumönnum og öðrum embættislaus- um lögfræðingum og próf. Einari Arnórssyni í Reykja- vík. Frumkvöðlar fundarins voru þeir Eggert Claessen og Sveinn Björnsson. Á fundinum voru mættir: Oddur Gíslason, Eggert Claessen, Ari Jónsson, Einar Arnórsson, Gísli Sveinsson, Kr. Linnet, Oddur Hermannsson, Lárus Fjeldsted, Einar M. Jónasson, Guðm. Ölafsson, Björn Þórðarson, Magnús Sigurðsson, Magnús Guðmundsson og Sveinn Björnsson. Fundarstjóri var kosinn Oddur Gislason og tilnefndi hann sem ritara Magnús Guðmunds- son. Fundarstjóri gaf fyrst orðið Eggert Claessen og las hann fyrsl upp frumvarp til laga fvrir væntanlegt mál- flutningsmannafélag, en hann bafði samið frumvarp þetta. Síðan lýsti fundarstjóri þvi yfir, að liann mundi láta ræða hverja einstaka grein fvrir sig og las þá fyrst upp 1. gr. 128 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.