Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Qupperneq 83
frv. Gisli Sveinsson tók til máls um grein þessa og vildi
láta félagið heita lögmannafélag en eigi málflutnings-
mannafélag. Lýsti liann því yfir, að hann væri hugmynd-
inni um félagsstofnunina sérlega hlynntur. Eggert Claes-
sen tók það fram, að hann væri hlynntur þvi nafni á
félaginu, sem upp á er stungið í frv., þar sem orðið lög-
maður næði eigi aðeins til málflutningsmanna, heldur
einnig til annara löglærðra manna. Með atkvæðagreiðslu
var samþykkt, að nafn félagsins skyldi 'vera eins og upp
á er stungið í frv. Iiver einstök grein frv. var síðan lesin
upp, rædd og lienni brevtt, ef það var samþjdtkt, og voru
breytingarnar allar, sem samþykktar voru, jafnótt skráð-
ar inn i uppkast það, sem Eggert Claessen lagði fram.
Að því búnu var frv. borið undir atkvæði og samþvkkt
í heild sinni með áorðnum breytingum. I stjórn félags-
ins voru kosnir: Eggert Claessen með 12 atkv., Oddur
Gísláson með 8 atkv. og Sveinn Björnsson með 7 atkv.
Sem endurskoðendur voru kosnir Magnús Sigurðsson
og Lárus Fjeldsted. Ákveðið var að ávaxta sjóð félagsins
i Landsbankanum.
Þá lagði Sv. Björnsson fram frv. til málflutningsmanna-
taxta og hafði hann samið taxtann, en kvað „svstemið"
að nokkru danskt. Lagði hann til að nefnd væri falið
að fjalla um taxann, og voru í þessa nefnd kosnir þeir
Gísli Sveinsson með 9 atkv., Magnús Sigurðsson með
9 atkv.. Oddur Gíslason með 8 atkv., Sveinn Björnsson
með 8 atkv. og Eggert Claessen með 7 atkv.
Fundi frestað til mánudags 11. des. þ. á. á sama stað
kl. 9 síðd. — Fundarbók lesin og samþykkt.
Oddur Gíslason.
Magnús Guðmundsson.
Ár 1911, hinn 11. desbr., var fundinum haldið áfram
á tilsettum tíma. Fundinn setti Oddur Gíslason og tók
þá fyrst til máls Eggert Claessen og benti á, að í 12. gr.
Tímarit lögfræðinga
129