Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 84

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 84
laganna væri, eins og tilætlunin var að liafa þau, óljós ákvæði, að því er snerti það að væntanlegur taxti yrði aðeins mínimum taxti og var orðalaginu breytt þannig, að eigi gat verið vafi á, að svo yrði. Þvi næst var útbýtt taxta fvrir meðlimi félagsins, en frv. þetta hafði nefnd sú búið til, sem til þess var kosin á síðasta fundi. Gerði Gísli Sveinsson grein fyrir taxta- frv. Einar Arnórsson tók þvi næst til máls og hafði ýmis- legt út á taxtann að setja, sérstaklega, að honum þætti bann of lágur. Eggert Claessen andmælti því og urðu síðan allmiklar umræður um ýms atriði, en gjaldskráin var síðan samþykkt lið fyrir lið með þeim brevtingum, sem á henni voru samþykktar. Voru breytingarnar skráð- ar jafnóðum i 2 hinna útbýttu eintaka og var gjald- skráin síðan samþykkt i heild sinni. Aulc þeirra, sem mættir voru á síðasta fundi, voru mættir: Axel Túliníus, Guðmundur Sveinbjörnsson og Sigurður Lýðsson, en af þeim, sem mættu á síðasta fundi mættu eigi á þessum Guðmundur Ólafsson, Oddur Hermannsson, Ari Jónsson, Einar Jónasson og Kristján Linnet. Á hvorugum fund- inum mættu Jón Kristjánsson, Magnús Arnbjarnarson, Hannes Thorsteinsson og Vigfús Einarasson. Fundarbók lesin og samþykkt. — Fundi slitið. Oddur Gíslason. Magnús Guðmundsson.“ Um starfssvið félagsins og markmið bera tvær fyrstu greinar félagslaganna vitni. Þær hljóða þannig: „1. gr. Nafn félagsins er: „Málflutningsmannafélag Islands“. Heimili þess er í Reykjavik. Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna málflutn- ingsmanna, efla góða samvinnu milli þeirra og stuðla til þess, að þeir fylgi sömu reglum um borgun fyrir störf sín. 2. gr. Til þess að geta orðið meðlimur félagsins, verða 130 Timaril löf/frædinya

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.