Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Page 25

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Page 25
hryggjarlið var áberandi hærri en hinir, en þar kvartaði stefnandi mest um sársauka og stirðleika. Taldi læknirinn tæpum 6 mánuðum eftir slysið, að ástandið myndi haldast óbreytt úr því, en verið gæti þó, að það batnaði eitthvað. Læknir sá, er hér átti hlut að, var almennur héraðslæknir. Hann mat örorku mannsins af völdum slyssins og taldi hana vera 25% varanlega. Leitað var af liálfu varnaraðila umsagnar tryggingayfirlæknis, sem þá var Jóhann Sæ- mundsson, um fyrirliggjandi læknisvottorð. Jafnframt var sá læknir beðinn að meta örorku eigiimiannsins eftir þeim. Hann taldi, að óeðlileg þreyta slasaða myndi smám saman hverfa, ör i andliti ekki, svo og væri vafasamt, að röddin næði sér. Taldi hann varanlega örorku mannsins hæfilega metna 10%. Héraðsdómari taldi, að ætla yrði með hliðsjón af fyrir- liggjandi gögnum, að slasaði myndi brátt ná svo að segja fullum starfskröftum. Þó þætti verða að dæma honum hætur skv. þessum kröfulið, og' töldust þær hæfilega ákveðnar kr. 3.500,00. Samsvaraði það 7 mánaða kaupi mannsins. Um afleiðingar af meiðslum konunnar sagði í vottorði héraðslæknis, að vinstra kinnbein sé brotið og standi mildu skemmra út en hitt og dragi vinstri augnkrók niður. Þetta lýtti svip konunnar talsvert. Þá kvartaði hún um verk i höfði og vinstri öxl, en hún hafði viðbeinsbrotnað þeim megin. Sárir verkir séu í liöfði og tíðir, cn mismunandi miklir. Héraðslæknir mat konunni 20% varanlcga örorku. Tryggingayfirlækni voru send læknisvottorð til umsagn- ar, svo og til að framkvæma mat á örorku konunnar. Mat hann konunni 8% varanlega örorku. I héraðsdómi segir um mat tjónbóta til konunnar fyrir þjáningar, lýti, óþægindi og minnkaða vinnugetu: „Virðist réttinum ástand konunnar nú og bataútlit vera slíkt, að ætla verði, að heimi verði ekki nein varanleg óþægindi af slysinu og hún verði full fær til allrar vinnu. Hins vegar virðast andlitslýti hennar vera mjög veruleg, og þykir Tímarit lögfræðinga 50
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.