Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1973, Side 8

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1973, Side 8
hann því embætti til dánardags. Ljóst er af því, sem hér hefur verið rakið, að Valdimar hefur haft með höndum hin ábyrgðarmestu störf á sínu sviði, og er það samróma álit þeirra, sem til þekkja, að hann hafi rækt þau öll af mikilli alúð og vandvirkni. Starf saksóknara var nýmæli hér á landi og því mikils um vert, hvernig það mótaðist. Valdimar fór því til Danmerkur og e.t.v. víðar til þess að kynna sér framkvæmd málanna þar. Kom það, ásamt fyrri reynsiu og eðlisJ<ostum hans sjálfs, að góðu haldi. Þeim, sem fer með ákæruvaldið, er mikill vandi á höndum. Annars vegar ber þess að gæta, að lög og réttur sé í heiðri höfð, en hins vegar, að menn séu ekki eltir með tilefnislitlum eða tilefnislausum ákærum. Má þá og minna á það, sem almenningur gerir sér oft ekki Ijóst, að ákæruvaldinu ber að sanna sök sakbornings, og veltur því afstaða ákæruvalds oftsinnis á mati sönnunargagna. Þar verður oft mjótt mundangshófið, en eigi má gleyma því, að það er hlutverk ákæruvalds að ákæra, ef gögn málsins verða talin nægi- leg eða líkleg til sakfellis, en dómstólanna að skera úr vafanum. Valdimar Stefánsson var svo fær og vammlaus maður, að ekki verður með neinum rökum sagt, að hann hafi misbeitt ákæruvaldinu, og mun það samdóma álit allra, er til þekkja. Auk aðalstarfa hlóðust á Valdimar ýmis önnur störf. Hann var t. d. varafor- maður Siglingadóms, og varasáttasemjari í vinnudeilum um tíma. Á meðan hann var sakadómari, var hann og stundum varadómari í Hæstarétti. Honum var falið að athuga endurbætur á fangelsismálum hér á landi og kom þar fram með margar gagnlegar tillögur. sem væntanlega komast smám saman í framkvæmd. Hann hafði um árabil á hendi kennslu í refsirétti í lagadeild háskólans, var stórmeistari Frímúrarareglunnar á Islandi o. fl. mætti telja. Valdimar var höfðinglegur maður að ytra útliti, fremur hæglátur og hlé- drægur í framkomu, en fastur fyrir og skörulegur, ef því var að skipta. Undir- menn hans lofa hann sem reglusaman og skilningsríkan húsbónda. i sam- starfi var hann lipur og góðgjarn. Vinum hans og kunningjum ber og saman um, að hann hafi verið vinur vina sinna, hófstilltur og hvers manns hugljúfi. Árið 1936 kvæntist Valdimar Ástu Júlíu Andrésdóttur kaupmanns, er lengi verzlaði á Hverfisgötu hér í borginni, Pálssonar og konu hans Ágústu Pét- ursdóttur. Minnast margir eldri Reykvíkingar þeirra hjóna að góðu einu. Það mun mála sannast, að Valdimar var mjög tengdur Eyjafirði í hug og hjarta, þótt hann túlkaði þær tilfinninoar sínar ekki á sama hátt og systkini hans — Davíð og Guðrún. Engu að síður festi hann hér rætur og vann ævi- starf sitt. Frú Ásta á vissulega sinn þátt í því, hve vel tókst til í þeim efnum, enda er hún kona sköruleg og hjartahlý bæði utan heimilis og innan, traust og góðviljuð. Átti Valdimar gott athvarf hiá henni ef útaf bar. Börn þeirra Ástu og Valdimars eru tvö: Andrés sýslumaður í Strandasýslu, kvæntur Katrínu Helgu Karlsdóttur, og Ragnheiður gift Hannesi Hafstein lög- fræðingi og deildarstjóra í utanríkisráðuneytinu. Það hefur löngum verið siður að draga saman í fáum orðum það, sem manni verður efst í huga við andlát vinar og samverkamanns. Eru þá stund- um notuð nokkuð útþvæld orð, sem engu að síður halda glldi sínu, og svo verður hér. Er ég rifja upp minningu mína um Valdimar Stefánsson leita á hugann orðin: „Eftir lifir mannorð mætt, þótt maður deyi.“ Theodór B. Líndal 6

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.