Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 22

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Blaðsíða 22
eigendur ökutækja og aflvéla, njóta ekki verndar gegn endurkröfu Tryggingastofnunarinnar. Ástæðan fyrir því er líklega sú, að flestir eigendur ökutækja, þ. e. allir eigendur skráningarskyldra ökutækja, hafa lögboðna ábyrgðartryggingu skv. umferðarlögum. Sú vátrygging greiðir Tryggingastofnuninni endurkröfur, sem falla á þann, er skaða- bótaábyrgð ber á umferðarslysi. Hefur Tryggingastofnun ríkisins því a. m. k. í orði kveðnu verulega fjárhagslega hagsmuni af því að eiga fullan endurkröfurétt í þessum tilvikum. Telja verður óeðlilegt, að al- mannatryggingar eigi endurkröfurétt á hendur skylduábyrgðartryggj- anda ökutækis. Sýnist ekki heppilegt, að hið opinbera stuðli að því að viðhalda tvöföldu tryggingakerfi, eins og hér er að nokkru leyti um að ræða. Hins vegar hefur vinna við endurkröfur hjá Tryggingastofnun ríkisins og bifreiðatryggingafélögunum í för með sér talsverðan kostn- að, sem mætti spara, ef endurkröfuréttur væri afnuminn. Að öðru leyti vísast til þess, sem segir um afnám endurkröfuréttar í 9. kafla hér á undan. Um endurkröfurétt á hendur öðrum tryggingarskyldum en eig- endum skyldutryggðra ökutækja er það að segja, að eðlilegt virðist, að þeir njóti ekki lakari réttarstöðu en tryggingarskyldir atvinnurek- endur hafa nú skv. 2. málsl. 58. gr. Mætti taka það atriði til athugunar við næstu endurskoðun ATL. 11. Nánar um réttarstöðu aðila, sem ber skaðabótaábyrgð á slysi, er slysatryggingin bætir að einhverju leyti 1 köflum 9 og 10 hér á undan hefur verið lýst reglum um endur- kröfurétt Tryggingastofnunarinnar skv. 58. gr. ATL. Hér verður i stuttu máli fjallað um samband slysabóta frá Tryggingastofnun rík- isins og skaðabóta, sem bótaþegi á rétt á eftir almennum skaðabóta- reglum. Það viðfangsefni er nátengt endurkröfureglunum. Eigi bótaþegi skv. IV. kafla ATL skaðabótakröfu vegna slyssins á hendur þriðja aðila, verður bótaþegi að sæta því, að slysatryggingar- bætur komi að fullu til frádráttar skaðabótakröfu hans. Um þetta er örugg dómvenja. Slysatryggingarbætur dragast frá skaðabótakröfunni, án tillits til þess, hvort sá skaðabótaskyldi hefur greitt iðgjald vegna tryggingar bótaþegans eða ekki, sbr. t. d. Hrd. 1958, 777, 1972, 417 og 1972, 798. Reglan um fullan frádrátt slysatryggingarbóta er andstæð almennu reglunni um summutryggingar í 2. mgr. 25. gr. VSL. Hins vegar er hún í samræmi við sérregluna í niðurlagsákvæði 2. mgr. 25. gr. VSL. Segja má, að um slysatryggingu skv. IV. kafla ATL fari í meginatrið- um eftir sambærilégum reglum og gilda um skaðatryggingar skv. 25. 160
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.