Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 59
Rlkissaksóknarar Norðurlanda á fundi i Reykjavík 12. september 1978. TaliB frá vinstri: Magnus
Sjöberg (Svíþjóö), Risto Leskinen (Finnlandi), ÞórSur Björnsson, Lauritz Dorenfeldt (Noregi) og
Per Lindegaard (Danmörku). — (Ljósm.: Emelía Björnsdóttir).
svika. Hrd. XXVII bls. 9.
6. Það er algengt að fleiri menn fremji saman vátryggingarsvik. Á íslandi
er þó aðeins að finna eitt tilvik, þar sem hópur manna hefur á skipulagðan
hátt framið vátryggingarsvik og tilraun til þeirra í stórum stíl. Þetta gerðist
á árunum 1945 og 1946. Sjö menn frömdu á þessu tímabili margar stórhættu-
legar íkveikjur í húsum bæði í Reykjavík og nágrenni og gerðu ennfremur
áætlanir um að kveikja í enn fleiri húsum og að sökkva bát — í því skyni að
fá tryggingarfjárhæðir húsa, báts og varnings í þeim greiddar. Tveir menn
komu fram sem leiðtogar hópsins. Hrd. XIX bls. 1.
Á árinu 1977 voru þrjár ákærur gefnar út á hendur mönnum fyrir vátrygg-
ingarsvik og tilraun til þeirra.
i tveimur tilvikum reyndi bifreiðareigandi, sem hafði lánað ökuréttinda-
lausum manni bifreið sína, sem síðan ók henni út af þjóðvegi og eyðilagði
hana, að fá tryggingarfé bifreiðarinnar greitt og í bæði skiptin tilkynnti
eigandi bifreiðarinnar tryggingarfélaginu með bréfi að hann hefði ekið bif-
reiðinni. Ákærur útgefnar 31. október og 6. desember 1977.
i einu tilviki tók maður farangurstryggingu í nafni annars manns, sem var
að fara til Danmerkur og Noregs, og sendi síðan tryggingarfélaginu falsað
bréf frá ferðamanninum, þar sem tilkynnt var að farangurinn hefði glatast.
Brotamanninum tókst að fá kr. 100.000,— greiddar hjá tryggingarfélaginu
áður en upp komst um brotið. Ákæra útgefin 3. janúar 1977.
153