Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 49
Njörður Snæhólm, yfirlögregluþjónn
Ragnar Vignir, aðstoðaryfirlögregluþjónn
hægt að taka myndir í gegnum linsur smásjárinnar.
Tæknideildin annast allar fingrafaraathuganir. Ekki er þörf á að
leita út fyrir stofnunina við athuganir á fingraförum, hvorki efna-
fræðilegar rannsóknir á þeim né annað.
Samkvæmt 6. gr. laga nr. 108/1976 á rannsóknarlögregla ríkisins að
halda skrá um myndir og fingraför, sem tekin eru samkvæmt heimild
í 57. gr laga um meðferð opinberra mála. öllum lögreglustjórum er og
skylt að senda embættinu eintök mynda og fingrafara, sem tekin eru
samkvæmt fyrrgreindu ákvæði. Þarna á að vera miðstöð þeirra fingra-
fara, sem til eru.
Að sögn Sævars Jóhannessonar, rannsóknarlögreglumanns, eru í
fingrafarasafninu liðlega 2100 fingraför, sem tekin eru í Reykjavík af
einstaklingum 16 ára og eldri, er uppvísir hafa orðið að afbrotum. Eitt-
hvað á annað þúsund fingrafara munu vera til, sem tekin eru af ung-
lingum, er lent hafa í kasti við lögin. Ekki munu enn liggja fyrir
143