Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 31
böndum ríki nokkur vafi um, hvað teljist til hjúskapareignar hvors
hjóna.
Þessar breyttu reglur um skattlagningu hjóna hafa, eins og liggur
reyndar í augum uppi, í för með sér nokkra röskun á skattbyrði hjóna
innbyrðis. Eru það fyrst og fremst eiginkonur, sem unnið hafa fyrir
verulegum launatekjum utan heimilis, sem tapa á breytingunni, enda
hafa þær fram að þessu notið mesta hagræðisins af 50% frádráttar-
reglunni.
Reglunum um skattlagningu barna er einnig breytt. Skv. eldri lög-
um var meginreglan sú, að börn voru ekki sjálfstæðir skattaðilar og
skyldu tekjur þeirra og eignir skattlagðar með tekjum og eignum for-
eldranna. Þó gátu foreldrar farið fram á sérsköttun barns, færu tekjur
þess fram úr tilteknu marki,'sem er 80.500 kr. á árinu 1978. Þrátt fyrir
sérsköttun barnsins teljast þó þessar 80.500 kr. með tekjum foreldr-
anna. Þessi regla eldri laga leiðir til þess, að fyrstu tekjur barnsins
hafa verið skattlagðar þyngst, venjulega í 40% skattstiga með tekjum
foreldranna. Umframtekjurnar hafa hins vegar almennt ekki verið
skattlagðar. Tekjur sérskattaðra barna hafa því skv. lögum nr. 68/1971
með síðari breytingum verið skattlagðar með stiglækkandi tekjuskatti.
Lög nr. 40/1978 gera ráð fyrir því, að tekjur barna, sem eru á fram-
færi foreldra sinna, stjúpforeldra, kjörforeldra eða fósturforeldra, séu
alltaf skattlagðar með tekjum foreldra, og engin heimild er almennt til
sérsköttunar bama. Hins vegar skulu launatekj ur barnanna skattlagðar
hjá þeim sjálfum með sérstöku 5% skatthlutfalli, en barnið nýtur hins
vegar ekki persónuafsláttar. Eignir barns skulu skattlagðar með eign-
um foreldra.
Frádráttarliðum fækkar nokkuð skv. hinum nýju lögum. Ekki er
þó gengið eins langt í því efni og gert var í fyrra frumvarpi, en þá var
lagt til, að flest allir frádráttarliðir yrðu felldir niður en afsláttai’liðir
teknir upp í stað fáeinna þeirra. Meðal þeirra frádráttarliða, sem niður
eru felldir, má fyrst nefna fi’ádrátt 50% af launatekjum útivinnandi
eiginkvenna. Að þessu ati’iði hef ég þegar vikið. Nam þessi frádráttar-
liður samtals ríflega 8 milljörðum króna á framtölum á árinu 1977.
Aði’ir mikilvægir frádráttai’liðir, sem niður verða felldir, eru þeir
liðir, sem tengst hafa íbúðarhúsnæði, sem skattaðili á og notar til eigin
þai’fa. Skv. nýju lögunum skal eigin húsaleiga ekki teljast til tekna,
en jafnfi’amt verður felld niður frádráttai’heimild végna fasteigna-
gjalda, viðhaldskostnaðar og fyrningar þessa húsnæðis, svo og aði’ir
frádráttai’liðir tengdir húsnæðinu. 1 framtölum ái’sins 1977 námu heild-
ai’tekjur vegna í’eiknaði’ar leigu af eigin íbúðai’húsnæði 8,2 milljörðum
125