Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 23

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 23
um jafnréttismál á flestum sviðum þjóðfélagsins, sérstaklega í kennslu- málum, fjölmiðlum og atvinnumálum. Með upplýsinga- og ráðgjafar- starfsemi er hægt að hvetja konur til að afla sér meiri menntunar og þar með fá betur launaða vinnu. Framfærslureglur. Á flestum sviðum er búið að afnema formlega mismunun kynjanna. Eins og minnst var á hér að framan, hefur verið viss mótsögn milli annarsvegar löggjafar á sviði sifjaréttar, þar sem jafnræði ríkir milli hjóna hvað snertir skyldur og réttindi, og hinsvegar annarrar lög- gjafar, þar sem litið hefur verið á karlmanninn sem framfæranda fjöl- skyldunnar, eins og gert hefur verið í skattalögum. Framfærslureglur norrænnar hjúskaparlöggjafar gera engan laga- legan mun á eiginmanni og eiginkonu. Framfærandahugtakið hefur sætt mikilli gagnrýni á seinni árum. Margir líta svo á, að núgildandi reglur um gagnkvæma framfærslu- skyldu hjóna viðhaldi þjóðfélagsástandi, þar sem konur afli aðeins tekna í litlum mæli. Menn segja sem svo, að fyrst konur krefjist jafn- réttis til menntunar og atvinnu til jafns við karla, þá verði að afnema þá vernd, sem þeim er búin með framfærslureglunum, þannig að fram- færsluskyldan verði einungis bundin við börnin. 1 hjúskaparlögum Norðurlanda eru reglur um framfærslueyri með maka eftir skilnað að borði og sæng og lögskilnað. Island hefur nokkra sérstöðu, hvað þetta snertir, þar sem það hefur alltaf verið hrein undantekning hér á landi, að úrskurðaður hafi verið framfærslueyrir með maka eftir lögskilnað. Ég er sammála því, að stefna beri að því að afnema reglur um gagnkvæma framfærsluskyldu hjóna, en tel þó, að nauðsynlegt sé að halda þeim reglum fyrst um sinn, m.a. með tilliti til þess, að fjöldi giftra heimavinnandi kvenpa er útliokaður frá at- vinnulífinu af ýmsum ástæðum, s.s. vegna menntunarskorts, skorts á dagheimilum o.fl. Áður en unnt er að afnema framfærsluskyldu milli maka, verða að gerast þær breytingar innan fjölskyldunnar og þjóðfélagsins, að hjóna- bandið virki ekki í raun meira letjandi á aflahæfni kvenna en karla. V. MANNRÉTTINDAÁKVÆÐI STJÓRNARSKRÁRINNAR. í stjórnarskrám allra Norðurlanda eru ákvæði sem vernda viss grundvallar mannréttindi. Það vaknar því óhjákvæmilega sú spurning, hvort löggjöf, sem 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.