Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 4
Þetta tækifæri verður ekki notað til að ræða, hvert nú stefnir í endurskoðun
laga um réttarfar. Telja verður, að um það sé talsverð óvissa. Hitt má minna
á, að framkvæmd skiptalaganna er ekki í jafngóðu horfi og vera þyrfti. í lög-
unum eru ákvæði, sem eiga að tryggja, að dánarbúum, sem eignir eru í,
sé jafnan formlega skipt. Sum þessara ákvæða eru slælega framkvæmd, svo
að of oft kemur fyrir, að skipti fara ekki fram á réttum tíma, þó að umtals-
verðar eignir séu í búum. Þetta er slæmt, og sérstaklega er leitt til þess að
vita, að nokkuð hefur sigið á ógæfuhliðina á þessu sviði síðustu áratugi.
Rætt hefur verið um að endurskoða ætti skiptalögin. Þess er þörf, því að
margt i þeim verður að færa til samræmis við aðstæður nú, öld eftir að þau
voru sett. Áður en til þess kemur, er ástæða til að koma endanlega í fram-
kvæmd reglum, sem tímans tönn hefur ekki unnið á, og settar voru fyrir 100
árum til að tryggja, að skipti færu fram, — reglum, sem voru „mikilsvarðandi
réttarbót fyrir landið."
Þór Vilhjálmsson.
LEIÐRÉTTING
Reykjavík 9. 11. 1978.
Hr. ritstjóri.
Vegna þeirra, sem kynnu að nota Tímarit lögfræðinga sem heimild, verð
ég að leiðrétta missögn í minningargrein um föður minn, Lárus Jóhannesson,
en grein þessi birtist í ágúst-hefti tímaritsins 1978.
Þar segir að kona Lárusar Blöndals, sýslumanns, á Kornsá, hafi verið Guð-
rún Þórðardóttir. Hið rétta er, að sú Guðrún var kona Björns Auðunssonar
Blöndals í Hvammi og þarmeð móðir Lárusar á Kornsá.
Eiginkona Lárusar og jafnframt amma föður míns var Kristín Ásgeirsdóttir
Finnbogasonar er bjó á Lambastöðum á Seltjarnarnesi og síðar á Lundum
í Stafholtstungum.
Ekki er við höfund greinarinnar að sakast um missögn þessa þar sem
undirritaður fékk tækifæri til að lesa greinina í handriti fyrir prentun.
Með þakklæti,
Guðjón Lárusson.
98