Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 20

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 20
IV. HVAÐA AÐFERÐIR ERU BESTAR TIL AÐ VINNA AÐ FRAMGANGI JAFNRÉTTIS? Það er staðreynd, að konur eru í minnihluta á Alþing'i, sveitar- stjórnum, stjórnum og nefndum á vegum hins opinbera og einkafyrir- tækja. Það er staðreynd að karlar hafa meiri starfsmenntun en konur. Það er staðreynd að atvinnulíf landsins greinist í ákveðin kvenna- störf og karlastörf, og að kvennastörf eru lægra launuð en karlastörf. Það er einnig staðreynd, að ábyrgð á heimilisstörfum og barnagæslu lendir í langflestum tilvikum á konunni. Þrátt fyrir lagalegan rétt, skipa konur á mörgum sviðum ekki sama sess og karlar og veldur þar miklu um hin rótgróna og hefðbundna hlutverkaskipting kynjanna í þjóðfélaginu, án þess að aðilar eigi í raun og veru nokkurt val. Það er því mikilvægt verkefni fyrir stjórnvöld að reyna að breyta þessu ástandi. Jafnréttislöggjöf afnemur beina formlega mismunun kynjanna. En löggjöf gengur lika lengra. Löggjöfin hefur, þegar fram líða tímar, áhrif í þá átt að breyta viðhorfi almennings til hlutverkaskiptingar kynjanna. Það er ekki unnt að ná fram fullu jafnrétti kynjanna nema átak sé gert á mörgum sviðum. Þetta gerist ekki á skömmum tíma, heldur er það langtímaverkefni að breyta aldagömlum viðhorfum hjá heilli þjóð. Það gerist aðeins ef allir vinna að sama marki. Þá á ég ekki að- eins við löggjafarvaldið og stjórnvöld, heldur einnig aðila vinnumark- aðarins, félagssamtök og hinn almenna borgara. Mönnum er ljóst, að hin hefðbundnu viðhoi’f manna til jafnréttis- mála eiga rót sína að rekja til uppeldisins. Menntun, sérstaklega menntun kvenna, og fjárhagslegt sjálfstæði, hefur einnig sitt að segja. Það er því á þessum sviðum, uppeldis, menntunar og atvinnulífs, sem mest þörf er á að vinna að jafnrétti kynjanna. Uppeldi og menntun. Það er orðið langt síðan franski stjórnmálamaðurinn og heimspek- ingurinn Rousseau skrifaði bók sína um menntunina, en hún kom út árið 1762. Sú bók hefur verið kölluð brautryðjendaverk í sögu upp- eldismála, því að hann kom þar fram með alveg nýtt sjónarmið, þ.e. barnið átti að vera miðpunkturinn, það átti að miða upþeldið við full- mótun persónuleikans. En það var einn hængur á. Uppeldisskoðanir Rousseaus áttu aðeins við um helming barna, þ.e. drengi. Uppeldi 114
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.