Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 52
Rannsóknarlögreglustjóri var sjálfur erlendis síðastliðið sumar og
heimsótti þá stofnanir í Bandaríkjunum og í fyrrasumar fór rann-
sóknarlögreglustjóri og yfirlögregluþjónn í kynnisferðir til Kaup-
mannahafnar, Stokkhólms og Oslóar.
Þess má geta, að áhugi er á því hjá rannsóknarlögreglu ríkisins að
halda sérstakt námsskeið fyrir rannsóknarlögi'eglumenn utan höfuð-
borgarsvæðisins.
TENGSL RANNSÓKNARLÖGREGLU RÍKISINS VIÐ FJÖLMIÐLA
Er rætt var við rannsóknarlögreglustj óra um starfsemi embættisins,
kom fram, að hluti af daglegu starfi innan rannsóknarlögreglu ríkisins
eru samskipti við fjölmiðla. Þeir Hallvarður Einvarðsson og Njörður
Snæhólm voru sammála um það, að blaðamaður hefði samband við
starfsmenn embættisins a.m.k. einu sinni á degi hverjum. Sú venja
hefur myndast, að það eru einungis rannsóknarlögreglustjóri eða stað-
gengill hans og yfirlögregluþjónn eða aðstoðarmenn hans, sem ræða
við fréttamenn.
Þeir Hallvarður Einvarðsson og Njörður Snæhólm bentu á það, að
yfirleitt væri mestur áhugi hjá fjölmiðlum á fyrstu stigum rannsókn-
ar. Lögreglurannsókn væri frumrannsókn og því væru fyrstu dagar
hennar afar þýðingarmiklir. Það gætu því oft komið upp vandamál í
samskiptum við fjölmiðlana. Þó væri leitast við að mæta að nokkru
leyti þeirri þörf, sem talin er á því, að almenningur fái að fylgjast
með gangi mála.
Rannsóknarlögreglustjóri kvaðst telja, að fjölmiðlar væru farnir
að sýna meiri hörku í umfjöllun sinni um einstök brotamál. Það væri
hins vegar meira áberandi, að ungir og óreyndir fréttamenn leituðust
við að skýra frá málum, áður en það væri tímabært. Það hefðu hins
vegar yfirleitt skapast góð tengsl milli rannsóknarlögi'eglu og þeirra
fréttamanna, sem um árabil fjölluðu um brotamál. Hallvarður kvaðst
hinsvegar vilja lýsa þeirri von sinni, að fréttamenn ynnu störf sín,
meira en verið hefur, með ákveðið upplýsinga- og fræðslugildi í huga,
varðandi reglur réttarfarslaga um lögreglurannsókn brotamála.
LÖGFRÆÐINGAR RANNSÓKNARLÖGREGLU RÍKISINS
Lögfræðingar þeir, sem starfa við embættið, hafa, að sögn Hallvarðs
Einvarðssonar, einkum með höndum stjórn rannsókna. Allar kærur,
sem berast fara fyrst til rannsóknarlögreglustjóra, er síðan útdeilir
þeim til lögfræðinganna. Ætlast er til þess, að lögfræðingarnir stjórni
146