Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Blaðsíða 45
HallvarOur EinvarSsson Þórir Oddsson,
rannsóknarlögreglustjóri rlkisins. vararannsóknarlögreglustjóri rlkisins
efni var til úrlausnar, sagði, að „eigi væri sýnilegt, að ætlunin hafi
verið að breyta málsmeðferð þessari með lögum nr. 107/1976“, en sam-
kvæmt lögum 54/1960 er verðlagsdómi, sem er sérdómstóll, ætlað að
rannsaka og dæma mál út af brotum á þeim lögum.
Með lögum nr. 102/1978 var gildistöku laga nr. 56/1978 um verð-
lag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti frestað til 1. nóv-
ember 1979. Samkvæmt 1. mgr. 53. gr. þeirra lága skulu mál vegna
brota á þeim sæta meðferð að hætti opinberra mála.
Lögræðissviptingarmál heyra undir sakadóm, en það úrlausnarefni
hefur verið borið undir Hæstarétt, hvort rannsókn á slíkum málum
ætti að heyra undir rannsóknarlögreglu ríkisins. 1 dómi Hæstarétt-
ar XLVIII bls. 872 sagði meðal annars: „Fram til gildistöku laga nr.
107/1976 hefur sakadómari rannsakað mál þessi í Reykjavík, en eigi
rannsóknarlögregla. Er eigi sýnilegt, að ætlunin hafi verið að breyta
þeirri málsmeðferð með greindum lögum.“
139