Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Page 14

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Page 14
IV. Þótt hér hafi aðallega verið dregnar fram hinar dökku hliðar og erfiðari á lagareglum þeim, sem hér er um rætt, má ekki gleyma því, að í lagareglum þessum felst nokkur vernd, sem alls ekki er þýðingar- laus. Hvað gera skuli, er mikið deilumál, en með hliðsjón af tilgangi spjalls þessa, þá get ég sett fram mínar skoðanir á því, hvernig eðli- legast er nú að skipa þessum málum: 1. Nauðsynlegt er að takmarka samningsfrelsið verulega með hlið- sjón af áhrifum verðbólgu. 2. Verðtrygging fjárskuldbindinga verði einungis leyfð í stórum verksamningum, er gildi nokkuð langan tíma, og ennfremur í opin- berum lánasamningum. 3. Dómstólunum verði veitt almenn lagaheimild til að víkja til hliðar að nokkru eða öllu leyti samningum, sem eru orðnir ósanngjarnir eða óhæfir vegna verðbólguþróunar. Þessari heimild geti dómstólar beitt án tillits til þess, hverjir samningsaðilar eru. 4. Dómstólarnir verði styrktir, svo að þeir ráði við hin auknu verk- efni, sem af þessu leiða. Líklega er það mesta nauðsynin. 108

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.