Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Blaðsíða 6

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Blaðsíða 6
lega almennu fylgi til þess að koma á því samræmi, sem nauðsynlegt er, til að auðvelt sé að leysa réttarágreining út af veðkröfum, er tengj- ast fleiri en einu ríki. Reglur um sjóveð í sigll. nr. 66/1963 voru sniðnar eftir lagaákvæð- um, sem giltu um það efni annars staðar á Norðurlöndum. Var megin- efni reglnanna í samræmi við alþjóðasanming, er gerður vai’ í Briissel árið 1926. Með sigll. 1963 voru að mestu rofin þau tengsl, sem áður voru milli reglna um sjóveð í skipi og um takmarkaða ábyi’gð útgerðar- manns, þannig að horfið var frá því, að eigendur nánar tilgreindra krafna ættu aðeins aðgang að tilteknum eignum útgerðarmanns (svo- kölluðum sjófjármunum).! Hinn 27. maí 1967 var gerður í Briissel nýr alþjóðasamningur um sjóveð og annars konar veðréttindi í skipum (International Conven- tion for the Unification of Certain Rules Relating to Maritime Liens and Mortgages). Samningurinn nær ekki til veðréttar í farmi. Með gerð nýs alþjóðasamnings í stað samningsins frá 1926 átti að fækka stórlega kröfum, sem tryggðar væru með sjóveði. Var tilgangurinn sá að gera mönnum auðveldara að nota skip sem andlag samningsveðs eða með öðrum orðum að styrkja stöðu eigenda samningsveðréttar.1 2 Þetta tókst ekki nema að nokkru leyti. I samningnum frá 1967 felst ekki róttæk breyting í þessu efni. Sú mikilvægasta er að fella niður sjóveð í skipi fyrir kröfum vegna ráðstafana, sem skipstjóri gerir utan heimilis skips og nauðsynlegar eru til verndar skipi eða framhalds ferðar. Danmörk, Noregur og Svíþjóð fullgiltu samning þennan og breyttu siglingalögum sínum til samræmis við hann. Island er ekki aðili að samningnum, en reglur sigll. nr. 34/1985 um sjóveð eru í meginatrið- um sniðnar eftir þeim reglum um sjóveð, sem nú gilda í Skandinavíu, einkum dönsku reglunum. Islenskar reglur, en þær er að finna í 11. kafla sigll., eru þó að sumu leyti frábrugðnar skandinavísku fyrir- myndunum. Helstu breytingar á sjóveðréttarreglum siglingalaga, er raktar verða til Brusselsamningsins frá 1967, eru þær, að fellt er niður sjóveð fyrir fyrrnefndum kröfum vegna ráðstafana skipstjóra, sbr. 5. tl. 216. gr. sigll. 1963, og kröfum vegna farmtjóns og tjóns á farangri, sbr. 4. tl. 216. gr. sigll. 1963, og að afnumin var sjóveðréttur í farmgjaldi, 1 Sbr. Gaukur Jörundsson, bls. 60, Ólafur Lárusson (1951), bls. 32-33 og 165-166, Þórður Eyjólfsson (1969), bls. 87-92, Falkanger og Bull, bls. 46 og Rosenmeyer, bls. 53 o. áfr. 2 Alþt. 1984 A, bls. 1053, Betænkning nr. 580/1970, bls. 21 og Rosenmeyer, bls. 55. 68
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.