Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Blaðsíða 18
4.4 Leigusamningar
Leigutaki á rétt til afsláttar, ef hið leigða hefur verið haldið galla, sbr. 3. mgr.
17. gr. húsleigulaga. Um slrkan rétt getur og verið að ræða, ef leigutaki hefur
ekki haft umráð leiguhlutar og not nema hluta af umsömdum leigutíma. Sama
getur átt við um aðrar viðvarandi greiðslur.38 Ætla verður, að sami fyrirvari
gildi varðandi leigusamninga og í kaupum, að óverulegir annmarkar geti ekki
veitt rétt til afsláttar.39
4.5 Verksamningar
Um verksamninga gildir sú meginregla, að verktaka er bæði rétt og skylt að
bæta úr galla á verki. Fullnægi verktaki ekki þeirri skyldu, getur verkkaupi
krafið verktaka um greiðslu kostnaðar af úrbótum. Ef úrbætur eru ekki
mögulegar eða þeirra verður ekki krafist vegna óhóflegs kostnaðar, sem þær
hefðu í för með sér, á verkkaupi rétt á afslætti.40 Sjá um þetta efni nánar kafla
1 hér að framan. Á það hefur verið bent, að um það megi deila, hvort hér sé rétt
að tala um afslátt.41 Sjá til athugunar H 1988 631 (Sumarbústaður).
4.6 Vinnusamningar
Vinnuveitandi getur krafist afsláttar af launagreiðslum í réttu hlutfalli við
ólögmætar fjarvistir starfsmanns, en tæplega í öðrum tilvikum.42 Ber í því
38 Bernhard Gomard: Obligationsret, 1. del, bls. 23, og sami höfundur: Obligationsret, 2.
del, bls. 132; Carl Jacob Amholm: Alniindelig Obligasjonsrett, bls. 290; Henry Ussing:
Obligationsretten, bls. 105.
39 Sjá t.d. Carl Jacob Arnholm: Almindelig Obligasjonsrett, bls. 290.
40 Sjá t.d. Bernhard Gomard: Obligationsret, 2. del, bls. 125; Erik Hörlyck: Entrepris-
retlige Noter. Kaupmannahöfn 1990, bls. 50; H.H. Vagner: Entrepriseret, Kaupmannahöfn
1988, bls. 170; Páll Sigurðsson: Verksamningar, bls. 178-179; Þorgeir Örlygsson: Efndir in
natura, bls. 33. IIST 30, Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir, 3.
útgáfa 1989, segir í grein 28.11., að valdi lagfæring óeðlilega miklum kostnaði miðað við
þann ávinning, sem af lagfæringu leiðir, geti verkkaupi ekki krafist þess, að gallinn sé
lagfærður eða krafist greiðslu þess kostnaðar, sem verktaki annars yrði fyrir, ef hann myndi
lagfæra gallann. Verkkaupi getur þess í stað krafist afsláttar úr hendi verktaka, sem samsvarar
þeirri verðrýrnun, er verður á verkinu vegna gallans. Afslátturinn skal þó aldrei nema lægri
upphæð en samsvarar þeim sparnaði, sem verktakinn kann að hafa haft af því að vinna verkið
ekki í samræmi við verksamning.
41 Carl Jacob Arnholm: Almindelig Obligasjonsrett, bls. 290-291, bendir á, að vissa
samsvörun með afslætti megi finna í einstaka reglum, sem veiti öðrum samningsaðila rétt til
endurgjalds fyrir þann hagnað, sem gagnaðili hefur af því að reiða fram greiðslu, sem ekki er
í samræmi við efni samnings, t.d. þegar verktaki hefur notað lélegra efni til verks, en um var
samið. Sjá einnig Tore Sandvik: Entreprenprrisikoen, Osló 1966, bls. 400 - 406.
42 Carl Jacob Amholm: Almindelig Obligasjonsrett, bls. 286; Bernhard Gomard:
Obligationsret, 2. del, bls. 126 og 130; H.G. Carlsen: Funktionærret, Kaupmannahöfn
1989, bls. 238; Per Jacobsen: Kollektiv Arbejdsret, Kaupmannahöfn 1987, bls. 349; Ole
Hasselbach: Ansættelsesretten, Kaupmannahöfn 1985, bls. 296.
168