Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Blaðsíða 35
Af framansögðu leiðir, að kaupandi getur við sömu skilyrði valið milli þess
að krefjast afsláttar eða skaðabóta. Er talið, að í sjálfu sér sé ekkert því í vegi
að viðurkenna heimild kaupanda til slíks vals, ef önnur niðurstaðan er
tjárhagslega hagkvæmari en hin.69 Þannig má t.d. benda á H 1993 839
(Safamýri), þar sem kaupandi krafðist afsláttar, þótt skilyrðum skaðabóta sýnist
hafa verið fullnægt.
7.3.3 Ábyrgð seljanda
Ef seljandi hefur ábyrgst tiltekna kosti eignar, eru að öllum líkindum gerðar
minni kröfur til frávika í gæðum hins selda. Sjá til athugunar dóm í UfR 1979.
87 (H), þar sem tiltekinn fyrirvari leysti seljandann undan skaðabótaábyrgð, en
kaupandinn var hins vegar talinn eiga rétt til afsláttar.70 Að þýðingu ábyrgðar
er vikið í H 1994 1839 (Ingólfur Óskarsson). Þar þótti sannað, að seljandi
íþróttavöruverslunar hefði heitið kaupendum því við sölu verslunarinnar, að
hann skyldi tryggja versluninni kaup á tilteknum íþróttavörum, sem seljandi
seldi í heildsölu. Seljandinn hefði hins vegar misst heildsöluumboðið um líkt
leyti og kaupin voru gerð, og því hefði hann ekki getað efnt loforð sitt um þetta.
Hefði verslunin af þessum sökum lent í tímabundnum erfiðleikum, og þættu
kaupendur af þeirri ástæðu eiga rétt til afsláttar af kaupverði.
7.3.4 Sala er liður í atvinnustarfsemi seljanda. Framkvæmdir, sem
seljandi hefur staðið fyrir
Ef sala fasteignar er liður í atvinnustarfsemi seljanda, hefur verið talið, að
skilyrðin til þess að beita afsláttarheimildinni séu nokkuð rýmri, heldur en
ella.71 Seljandi getur í slíkum tilvikum reiknað afslátt eða möguleika á afslætti
inn í kaupverðið.
Þá virðast dómstólar telja heimildina til að krefjast afsláttar vera eitthvað
rýmri, ef um er að ræða gallaðar framkvæmdir, sem seljandinn hefur sjálfur
staðið fyrir. Sjá um það efni til athugunar H 1967 108 (Bugðulækur), en þar var
við mat á því, hvort kaupandinn ætti rétt á afslætti, m.a. litið til jjess, að
seljandinn hafði sjálfur látið leggja hitalögn þá, sem reyndist gölluð. I H 1993
1693 (Akurholt) er til þess vitnað, að gallar hafi hvorki stafað af tilverknaði
seljanda né voru þeir eða áttu að vera honum kunnir, og var seljandi því sýkn-
aður af kröfum kaupanda. í H 1994 1931 (Hraunberg), sem dæmdi seljanda
skaðabótaskyldan gagnvart kaupanda, er að því vikið, að seljandi hafi verið
eigandi fasteignarinnar frá upphafi og mátti því vita, að lagnir kæmu ekki að
fullum notum, eins og legu þeirra var háttað. í H 1995 1401 (Bakkahlíð), sem
dæmdi kaupanda afslátt af kaupverði, er tekið fram, að seljandi hafi sjálfur reist
umrætt hús. Sjá einnig H 1996, 3. október (Logafold) í málinu nr. 195/1995.
69 Anders Vinding Kruse: Ejendomskob. bls. 133.
70 Bemhard Gomard: Obligationsret, 1. del. bls. 169.
71 Sjá Anders Vinding Rruse: Ejendomskob, bls. 125 o.áfr.
185