Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Blaðsíða 74

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Blaðsíða 74
samþykkis skjólstæðings, ef fela þarf mál hans öðrum lögmanni. Ákveðna takmörkun í þessu efni kann einnig að leiða af almennum reglum samn- ingaréttar um „undirumboð“ eða „framumboð“.90 Lrklega er þó ástæða til að gera nokkurn greinarmun á þeirri heimild lögmanns, sem leidd er af 3. mgr. 18. gr., til að fela öðrum mál skjólstæðings, eftir því hvaða verkefni hinum síðari lögmanni eru falin. Gera verður ráð fyrir því að leita þurfi samþykkis skjólstæðings, ef meðferð málsins er að öllu verulegu leyti falin öðrum, þar með talinn aðalflutningur þess. Ef verkefni þau, sem falin eru öðrum lögmanni, eru hins vegar takmörkuð við tiltekið minni háttar verk, svo sem að mæta við þingfestingu eða við tiltekið þinghald til þess að biðja um frest, væri honum væntanlega heimilt, þrátt fyrir ákvæði siðareglana, að fela það öðrum, án þess að bera það undir skjólstæðing sinn,91 enda virðist gengið út frá því í framkvæmd, sbr. að nokkru H 1988 198. Þá má ætla að heimildir í þessum efnum séu rýmri í þeim tilvikum, þegar mál er rekið utan starfssvæðis þess lögmanns, sem hefur mál með höndum, enda horfir það til sparnaðar fyrir umbjóðanda.92 H 1988 198 Lögmaðurinn A hafði tekið að sér vörn fyrir O í einkamáli. A fól héraðs- dómslögmanninum B að sækja dómþing við þingfestingu málsins og fá tveggja vikna frest til ritunar greinargerðar. Héraðsdómslögmaðurinn, sem hafði tekið að sér að mæta í mörgum málum fyrir ýmsa lögmenn, var staddur á dómþing- inu, meðan það stóð yfir. Þó þurfti hann oftar en einu sinni að svara í síma, sem var fyrir utan dómsalinn. Svo fór, að málið var þingfest, án þess að hann veitti því athygli. Var því bókað, að um útivist væri að ræða, og var málið dómtekið. Þegar lögmaður varnaraðila, A, frétti þetta, hafði hann strax samband við lögmann sóknaraðila, sem neitaði um endurupptöku málsins. A óskaði þá eftir endurapptöku við héraðsdómara, sem varð við því að heimila munnlegan málflutning um endurupptökukröfuna. Með úrskurði sínum hafnaði héraðs- dómari endurupptöku málsins, en sú niðurstaða var kærð til Hæstaréttar. f dómi Hæstaréttar segir: „Á reglulegum bæjarþingum í Reykjavík eru að jafnaði þingfest mörg mál. Þing sækja oftast nokkrir lögmenn, sem hafa hver fyrir sig tekið að sér að mæta í málum á vegum annarra lögmanna, oft margra. Eftir að fram var komið, að ekki var vegna stuttrar fjarveru lögmanns úr bæjarþings- stofu mætt í máli þessu, var eftir 3. og 4. mgr. 118. gr. laga nr. 85/1936 rétt að endurapptaka málið“. Þótt þess sé ekki getið sérstaklega í dóminum, má búast við því, að O hafi ekki veitt sérstakt samþykki sitt við því, að lögmaðurinn B mætti af hans hálfu við þingfestingu málsins. 90 Páll Sigurðsson: Samningaréttur. bls. 177. 91 Gomard: Civilprocessen, bls. 247. 92 Munch-Pedersen: Den danske Retspleje II., bls. 75. 224
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.