Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Qupperneq 59

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Qupperneq 59
í héraðsdómi segir, að í því réttarhaldi, sem sáttin var gerð í, hafi stefnendur ekki mætt sjálfir, og því hafi lögmaður þeirra farið með málflutningsumboð samkvæmt 4. gr. MFL. Síðan segir: „I málflutningsumboði felst ekki heimild til að gera sátt, sem er andstæð vilja umbjóðandans og hann hefur ekki gefið umboð til að gerð verði, sbr. hrd. [1984], bls. 148“. Þá segir, að ekki verði fallist á þann skilning stefndu, að heimilt hafi verið að leiða landskiptadeiluna til lykta með aðferð, sem styddist við 46. gr. laga nr. 85/1936. Það ráðist af réttarreglum um sameignina, hvaða gildi sátta-gerðin hafi gagnvart þeim sameigendum, sem ekki tóku þátt í henni. Ekki verði 46. gr. umræddra laga túlkuð á þann veg, að með dómi verði vikið frá þeim réttarreglum. Þá þótti einnig leiða af ákvæðum landskiptalaga, nr. 46/1941, að allir sameigendur yrðu að standa að sam- komulagi um landskipti. I dómi Hæstaréttar segir, að ekki verði á það fallist, að þeir sameigendur, sem undirrituðu dómsáttina, hafi haft heimild samkvæmt 46. gr. laga nr. 85/1936, til að ráðstafa sakarefni því, sem til meðferðar var, svo að bindandi væri fyrir þá sameigendur, sem ekki rituðu undir sáttina. Þá segir, að ekki verði heldur fallist á það, að samkvæmt 4. gr. MFL hafi falist í málflutningsumboði lögmanns sameigenda heimild til að leiða málið til lykta með dómsátt. Með þessu var héraðsdómur um ógildingu dómsáttarinnar staðfestur. Fram að því, að ofangreindir dómar Hæstaréttar gengu, virðist hafa ríkt nokkur óvissa í íslenskum rétti um umboð málflutningsumboðsmanns í þessum efnum. Töldu sumir að „væntanlega“ væri slík heimild ekki fyrir hendi,43 en aðrir töldu það leyfilegt, ef allar kröfur umbjóðanda væru teknar til greina.44 I KU 1877 kemur fram, að málflutningsumboð felur ekki í sér heimild til handa málflutningsumboðsmanni að gera dómsátt fyrir hönd skjólstæðings síns. Með vísun til þess hefur almennt verið talið í dönskum rétti, að málflutningsumboðsmaður hafi ekki þessa heimild.45 UfR. 1948 614 Undanfari máls þessa var sá, að J höfðaði mál á hendur K til heimtu skaðabóta. Undir rekstri málsins gerðu lögmenn aðilja dómsátt þess efnis, að skaðabótaskylda K var viðurkennd, en dómara í málinu falið að skera úr um fjárhæð skaðabóta auk málskostnaðar. Er vanefndir urðu á greiðslu samkvæmt sáttinni, krafðist J fjámáms til fullnustu hennar. Við fjárnámsgerðina mætti K. Er hún óskaði upplýsinga um það við hvaða heimild krafan studdist, tjáði fógeti henni, að dómur hefði fallið henni í óhag. Framburður vitna var á sömu lund, þ.e. að fógeti hefði sagt K við ljámámsgerðina, að hún hefði verið dæmd til greiðslu þeirrar kröfu sem fjárnámsbeiðnin laut að. Ekki varð þó af fjárnáminu, því að K greiddi kröfuna auk alls kostnaðar við gerðina. í máli því, sem hér er 43 Einar Amórsson og Theodór B. Líndal: Réttarfar I. hefti, bls. 111. 44 Þór Vilhjálmsson: Réttarfar II.. bls. 45. 45 Til dæmis Gomard: Civilprocessen, bls. 245, Hurwitz: Tvistemál, bls. 106, Munch- Pedersen: Den danske Retspleje, bls. 70 og Cohen: Procesfuldmagt. bls. 105. 209
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.