Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Side 79

Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Side 79
verður, að hún geti farið fram á hvern þann hátt, sem dómari telur fullnægjandi, sbr. meginreglu 1. mgr. 44. gr. EML um frjálst sönnunarmat. H 1952 301 Lögfræðingurinn J höfðaði mál fyrir hönd M gegn G til heimtu reiknings- skuldar. G sótti þing við þingfestingu og krafðist frávísunar málsins, með því að J hefði ekki málflutningsréttindi og hefði ekki umboð frá M til að fara með málið. J taldi hins vegar felast umboð til sín í því, að hann hefði lagt fram í málinu reikning undirritaðan af G, og væru lögfræðingar almennt ekki krafðir um frekara umboð fyrir dómi. í úrskurði héraðsdómara segir, að hann hafi ex officio endurupptekið málið og hafi lögmaðurinn Á lagt fram yfirlýsingu um, að J flytti málið fyrir sína hönd og á sína ábyrgð. Með hliðsjón af þessu og 3. og 4. gr., sbr. 20. gr., MFL, taldi héraðsdómari, að J hefði sannað nægjanlega umboð sitt til að fara með málið og var frávísunarkröfunni hrundið. Var úrskurður þessi staðfestur með dómi Hæstaréttar. Rétt þykir að árétta hér, það sem áður er sagt, að 1. mgr. 4. gr. MFL gildir aðeins um þingsókn og flutning máls fyrir dómi. Lögmaður, sem fengið hefur vfðtækari heimildir en almennt málflutningsumboð samkvæmt 2. mgr. 4. gr. MFL felur í sér, þarf því að sanna þetta víðtækara umboð sitt, ef það er dregið í efa.105 Samkvæmt því þarf lögmaður, ef heimild hans er vefengd, til dæmis að færa sönnur að því, að hann hafi umboð til að áfrýja máli, gefa eftir af kröfum umbjóðanda síns eða veita greiðslufrest. 3.6 Brottfall málflutningsuniboðs Umbjóðanda er almennt heimilt að afturkalla umboð, sem hann hefur veitt lögmanni, ýmist til málflutnings eða annarra verka.106 Af tilliti til hagsmuna gagnaðila verður þó að gera nokkum greinarmun á því, hvemig að afturköllun er staðið, eftir því um hvers konar umboð er að ræða. Meginregla SML um afturköllun umboðs er sú, að umbjóðandi skuli að jafnaði nota sömu eða hliðstæða aðferð við afturköllunina og hann notaði við að gefa umboðið.107 Hafi lögmanni til dæmis verið veitt sérstakt umboð með tilkynningu, sem beint var til tryggingafélags, til að koma fram gagnvart félaginu við uppgjör skaðabótakröfu, yrði að tilkynna viðkomandi félagi sérstaklega um brottfall umboðsins, sbr. 13. gr. SML. Varðandi stöðuumboð gildir hins vegar regla 15. gr. sömu laga, en þar segir, að slíkt umboð skuli teljast afturkallað „er umboðs- maðurinn lætur af starfanum". Þannig teldist málflutningsumboð samkvæmt 2. mgr. 4. gr. MFL nægjanlega afturkallað með því, að umbjóðandi lýsi því yfir við umboðsmann sinn. Sú spurning vaknar hér, hvort tilkynna þurfi viðkomandi dómstól, þar sem mál er rekið, að umboðið hafi verið afturkallað. Væntanlega 105 Markús Sigurbjömsson: Einkamálaréttarfar, bls. 127. 106 Pedersen: Indledning til sagfðrergerningen I., bls. 93. 107 Páll Sigurðsson: Samningaréttur, bls. 203. 229

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.