Tímarit lögfræðinga - 01.11.1996, Page 85
og starfshætti umboðsmanns bama og Björg Thorarensen deildarstjóri í
dómsmálaráðuneytinu sem fjallaði um barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og
eftirlit með að ákvæðum hans sé framfylgt. Fundargestir voru 37.
7. Hinn 25. apríl 1995 var félagsfundur um neytendur og úrskurðarnefndir.
Frummælendur voru Jón Magnússon hrl. sem fjallaði um úrskurðarnefndir í
neytendamálum, Rúnar Guðmundsson skiifstofustjóri Vátryggingaeftirlitsins
sem fjallaði um úrskurðarnefnd í vátryggingamálum og Valtýr Sigurðsson
héraðsdómari sem fjallaði um kærunefndir samkvæmt lögum um fjöleignarhús
og húsaleigulögum. Fundargestir voru 26.
8. Hinn 28. maí 1995 var hádegisverðarfundur á Kornhlöðuloftinu. Gestur
fundarins var Friðgeir Björnsson dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur og flutti
hann erindið Vinna í dómstól. Fundargestir voru 36.
9. Hinn 28. september 1995 var félagsfundur um opinbera réttaraðstoð.
Frummælendur voru Atli Gíslason hrl. sem fjallaði um ýmis sjónarmið er
tengjast opinberri réttaraðstoð og Dögg Pálsdóttir skrifstofustjóri sem kynnti
frumvarp til laga um opinbera lögfræðiaðstoð sem lagt var fram á Alþingi sl.
vor. Fundargestir voru 32.
10. Árlegt málþing Lögfræðingafélags íslands var haldið í 25. skipti
laugardaginn 7. október 1995 í Skíðaskálanum í Hveradölum og stóð frá kl.
10:00-17:00. Að málþingi loknu voru bornar fram léttar veitingar í boði
umhverfisráðherra.
Að þessu sinni var umfjöllunarefni málþingsins umhverfisréttur. Ráðstefnu-
stjóri var Helgi Jóhannesson hdl. Á málþinginu voru flutt eftirtalin erindi:
Gunnar G. Schram um fræðigreinina umhverfisrétt (Ragnhildur Arnljótsdóttir
flutti erindið í veikindaforföllum Gunnars), Ingimar Sigurðsson skrifstofustjóri
um störf umhverfisráðuneytisins og íslenska löggjöf á sviði umhverfisréttar,
Kristján Gunnar Valdimarsson skrifstofustjóri um umhverfisskatta, Karl
Axelsson hdl. og aðjúnkt um umhverfismál og eignarrétt, Guðný Bjömsdóttir
hdl. um umhverfismál og skaðabótarétt, Ragnheiður Bragadóttir lektor um
umhverfismál og refsirétt og Aðalheiður Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri
Náttúruvemdarráðs um alþjóðlegan umhverfisrétt. Framsögumenn svömðu
fyrirspumum auk þess sem almennar umræður voru nokkrar.
Málþingið var samkvæmt venju undirbúið af sérstakri málþingsnefnd innan
stjómar félagsins sem varaformaður þess Helgi Jóhannesson stýrði. Aðrir í
nefndinni voru Ragnhildur Arnljótsdóttir og Benedikt Bogason. Dr. Gunnar G.
Schram prófessor var nefndinni til ráðgjafar.
Málþingið sátu 93 þátttakendur og tókst það með miklum ágætum. Var þetta
í fyrsta sinn sem fjallað er um umhverfisrétt með svo yfirgripsmiklum hætti
með hliðsjón af lögfræðilegum sjónarmiðum.
235