Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Síða 16
senda inn fyrirspurnir um hvaðeina sem ætla má að vísinda- og fræðimenn Há-
skólans og stofnana hans geti svarað. Vísindavefurinn var opnaður af forseta ís-
lands og hópi barna og ungtinga úr grunn- og framhaldsskólum í Reykjavík og á
landsbyggðinni sem vígðu vefinn með því að senda inn fyrstu spurningarnar sem
þau höfðu undirbúið með kennurum sínum. Áhugi almennings fyrir Vísindavefn-
um fór fram úr björtustu vonum og var því ákveðið að starfrækja hann áfram á
næsta ári. í lok maí stóð Háskólinn síðan fyrir menningar- og fræðahátíðinni ..Líf
í borg'' þar sem boðið var upp á fjölbreytta dagskrá sem ætlað var að endur-
spegla borgarlífið í sínum margvíslegu myndum. Hátíðin var opnuð með glæsi-
legri athöfn. Opnunarathöfnin hófst með ávarpi rektors um háskólamenningu og
að því búnu var ftutt tjóðadagskrá með Matthíasi Johannessen og Ástráði Ey-
steinssyni. Þá var frumftuttur nýr háskótasöngur eftir Arnþrúði Litju Þorbjörns-
dóttur við kvæði Jónasar Hallgrímssonar. ..Til herra Páls Gaimard". sem geymir
einkunnarorð Háskóla íslands. „Vísindin efla alla dáð". Loks flutti Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, borgarstjórinn í Reykjavík, ávarp og steit athöfninni. Á hátíðinni
var boðið upp á myndlistarsýningar. fyrirlestra. teiksýningar. tónlistaratriði og
vettvangsferðir, svo nokkuð sé nefnt. Loks stóð Opni Háskólinn fyrir fjölda nám-
skeiða og fyrirlestra fyrir unga sem aldna, þátttakendum að kostnaðartausu.
Komust færri að en vildu. Einn af hápunktum dagskrárinnar voru námskeið í
heimspeki fyrir börn og ungtinga og tauk þeim með veglegri heimspekiráðstefnu
í Háskótabíói. Vísindavefinn erað finna á heimasíðu Háskótans undin www.vis-
indavefur.hi.is/
Háskólahátíð
Háskólahátíð var haldin í Háskótabíói föstudaginn 8. september að viðstöddu fjöl-
menni. Dagskráin hófst með því að rektor Háskóla íslands, Páll Skútason próf-
essor. flutti ávarp undir heitinu „Köllun Háskóla íslands" og er það birt í heild í
þessari árbók. Næst ftuttu erindi menntamálaráðherra. Björn Bjarnason. rektor
Manitoba-háskóta. Emöke J. E. Szathmáry. og formaður Stúdentaráðs. Eiríkur
Jónsson. Að ávörpum loknum veitti háskóiarektor þremur starfsmönnum Há-
skóta ístands viðurkenningar fyrir lofsverðan árangur í starfi. Loks fór fram veit-
ing heiðursdoktorsnafnbóta og flutti frú Vigdís Finnbogadóttir. fyrrverandi forseti
íslands. þakkarávarp fyrir hönd heiðursdoktoranna (sjá kaflann Heiðursdoktorar í
þessari bók).
Viðurkenningar til starfsmanna Háskólans
Á háskótahátíð 8. september var þremur starfsmönnum Háskóta ístands veitt við-
urkenning fyrir tofsvert framlag tit kennslu. rannsókna og til annarra starfa í þágu
hans. Viðurkenningin fyrir kennslu fétl í hlut Hjálmtýs Hafsteinssonar. dósents í
tölvunarfræði. í greinargerð valnefndar er tekið fram að Hjálmtýr þyki hafa náð
frábærum árangri við nýtingu nýjustu kennstutækni. Hann vandi mjög til kennsl-
unnar og sé einkar laginn við að vekja áhuga nemenda á námsefninu. Guðmund-
ur Þorgeirsson. prófessor við tæknadeild. hlaut viðurkenningu fyrir rannsóknir. [
greinargerð valnefndar er greint frá hetstu afrekum hans í klínískum rannsókn-
um á sviði hjarta- og æðasjúkdóma og grunnrannsókna á starfsemi æðaþels-
frumna. Þriðja viðurkenningin var veitt Margréti S. Björnsdóttur, framkvæmda-
stjóra samskipta- og þróunarsviðs Háskólans. fyrir framlag hennar til uppbygg-
ingar Endurmenntunarstofnunar Háskólans, en ártegur fjöldi nemenda er nú
kominn yfir tíu þús. Rektor afhenti starfsmönnunum þremur viðurkenningarskjöl
og peningaverðlaun.
Borqarfræðasetur- samstarfsverkefni Háskóla íslands og
Reykjavíkurborgar
Þann 17. mars undirrituðu Pátl Skúlason háskólarektor og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir borgarstjóri Reykjavíkur samning mitli Háskólans og Reykjavíkurborgar um
samvinnuverkefni undir heitinu Borgarfræðasetur. Markmið Borgarfræðaseturs-
ins er að gangast fyrir margháttuðu rannsókna- og fræðsiustarfi í greinum sem
tengjast bæjum og byggðum og að styrkja með því tengsl Háskóla fsiands og
Reykjavíkurborgar og þar með stöðu Reykjavíkur sem háskólaborgar. Formaður
stjórnar Borgarfræðaseturs er Jón Sigurðsson. bankastjóri Norræna fjárfestinga-
bankans í Helsinki, en Stefán Ótafsson prófessor var ráðinn forstöðumaður. Gert
er ráð fyrir því að Borgarfræðasetrið taki til starfa af fullum krafti á árinu 2001.
MBA-nám við Háskóla íslands
Á árinu var samþykkt að taka upp MBA-nám við viðskipta- og hagfræðideild
Háskólans. Meginmarkmiðið með náminu er menntun stjórnenda og er tögð
áhersla á að verkleg og bókleg þjálfun fari saman. Mikilt áhugi var á náminu.
enda er nú í fyrsta sinn boðið upp á það á íslandi, en fjöldi Isiendinga hefur sótt