Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 58
Kennsla
Þau nýmæli urðu í kennslu á árinu að tekið var upp kennslumiðað framhaldsnám
til meistaraprófs (M.Paed.) í dönsku, ensku og íslensku. Markmið námsins er að
búa nemendur undir kennslu og námsstjórn í kennslugrein á grunn- og fram-
haldsskólastigi. Nám til M. Paed.-prófs er 45 einingar (en M.A.-próf er 60 eining-
ar). og skulu minnst 15 einingar námsins vera úr kennsluréttindanámi sem fé-
lagsvísindadeild skipuleggur.
Jafnframt var á árinu farið af stað með 45 eininga grunnnám í hagnýtri dönsku.
ensku og þýsku og tvö námskeið í þýðinganámi. Hagnýta tungumálanámið veitir
undirbúning fyrir fjölbreytta þátttöku í fslensku atvinnulífi. þar sem sífellt reynir
meira á hatdgóða tungumálakunnáttu. Auk skyldunámskeiða, sem þjálfa færni í
rituðu og töluðu máli og veita þekkingu á sögu og menningu viðkomandi mál-
svæðis, geta nemendur valið sér mismunandi samsetningu í námi. Boðið er upp
þjálfun í viðkomandi tungumáli sem varðar til dæmis fjölmiðta. ferðamál. lög og
viðskipti. Að auki geta nemendur vatið úr námskeiðum sem fjalta um menningu.
bókmenntir. málfræði. mátsögu og máltýskur.
Birna Arnbjörnsdóttir var ráðin sem einn af aðalkennurum M.Paed.-námsins og
hagnýtrar ensku. Gauti Kristmannsson var ráðinn til að hafa umsjón með þýðing-
arnáminu. Þau eru bæði stundakennarar við deildina.
Haldið var áfram með fjarkennslu í íslensku til B.A-prófs og er nú skammt í að ölt
kjarnanámskeið í íslensku verði í boði eftir þessari námsleið.
Heimspekideild 1995 1996 1997 1998 1999 2000
Skráðir stúdentar 1.328 1.338 1.198 1.171 1.237 1.210
Brautskráðir:
B.A.-próf 134 109 148 139 139° 115
B.Ph.lsl.-próf 5 5 5 8 10 11
M.A.-próf 12 22 7 8 15 11
M.Paed.-próf 2 1 2 4 4 3
Cand.mag.-próf 1 1 1
Táknmálstúlkun 4 4 1
Doktorspróf 1 1 1
Kennarastörf 81,25 78.81 75.24 76,03 76.85 77.59
Sendikennarar 8 8 8 8 8 9
Aðrir starfsmenn 4.55 2,33 5.9* 6.74* 4,8* 7.9*
Stundakennsla/stundir 14.400 12.500
Útgjöld (nettó) í þús. kr. 156.171 173.102 180.560 253.102 277.399 286.738
Fjárveiting í þús. kr. 152.832 166.367 178.486 213.881 271.133 287.623
* Stofnanir deildar meðtaldar.
Tölur um skráða stúdenta miðast við janúar árið eftir. þ.e. mitt námsárið.
Doktorsvamir
Sveinn Yngvi Egilsson varði doktorsrit sitt. ..Arfur og umbylting. Rannsókn á ís-
lenskri rómantík". í heimspekideild 12. febrúar. Fyrsti andmælandi við doktors-
vörnina var Njörður P. Njarðvík. prófessor í heimspekideild. og annar andmæt-
andi var Andrew Wawn. kennari við enskudeild háskótans í Leeds.
Ólína Þorvarðardóttir varði doktorsrit sitt. „Brennuöldin. Galdur og galdratrú í
málskjölum og munnmælum'". í heimspekideild 3. júní. Fyrri andmælandi við
doktorsvörnina varSverrirTómasson. fræðimaður við Stofnun Árna Magnús-
sonar. og hinn síðari Bo Almqvist. prófessor emeritus við University Cotlege
Dublin. Ótína er fyrsti nemandinn sem lýkur doktorsprófi eftir að tekið var upp
doktorsnám í heimspekideild.
Rannsóknir
Rannsóknastarfsemi heimspekideildar fer að mestu fram á vegum fimm rann-
sóknastofnana deitdarinnar og standa þær einnig fyrir margvíslegri útgáfustarf-
semi. Auk þess sinna kennarar rannsóknum sínum sjálfstætt. eða í samvinnu við
stofnanir deildarinnar eða aðra aðila innanlands sem utan. Sjá nánar um rann-
sóknir í kafta stofnana undir Hugvísindastofnun.
54