Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 72
framkvæmdastjóra kennslu og fræða á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Deildar-
ráð hefur frá hausti 2000 boðið Gísla Einarssyni lektor, sem ráðinn var fram-
kvæmdastjóri kennslu og fræða á háskólasjúkrahúsinu, aðild og fundarsetu (án
atkvæðisréttar) í deildarráði læknadeildar. Forseti tæknadeildar hefur fyrir hönd
deildarinnar og heilbrigðisvísindadeildanna krafist aðildar að stjórn háskóla-
sjúkrahússins. sem enn hefur ekki fengist. Þó deildarforseti hafi einu sinni verið
boðaður á fund í stjórnarnefnd spítalans og verið veitt aðild að þróunarnefnd spít-
alans, varð ekki af formlegri aðild að stjórn spítalans. sem bíður samninga um
háskólasjúkrahúsið milli spítalastjórnar og Háskólans. Talsverðar óformlegar við-
ræður hafa þó farið fram milli deildarforseta. rektors og forstöðumanna
stjórnsýslu Háskólans við forsvarsmenn stjórnar sjúkrahússins, einkum forstjóra
þess og framkvæmdastjóra kennstu og fræða. Samningaferlið var kynnt og rætt í
deildarráði og samstarfsráð heilbrigðisvísindadeitdanna lagði drjúgan skref til
samningagerðarinnar.
Kennslumál
Nám til embættisprófs í læknisfræði tekur sex ár en leyfilegur hámarksfjöldi er 8
ár. Margir þreyta samkeppnispróf í desember hvers árs án þess að öðlast rétt tit
áframhatdandi náms. Ekki eru sett takmörk á hversu oft stúdentar geta innritast
sem nýnemar. Sá tími sem stúdentar nota til að þreyta samkeppnispróf án tilætl-
aðs árangurs er ekki talinn með í átta árunum né heldurtíminn fram að inntöku-
prófi. hafi nemandinn náð þeirri einkunn. sem tryggir aðgang að deildinni. Vegna
takmarkaðrar kennslugetu í klínískum hluta námsins hafa aðeins 40 nemendur á
ári fengið að halda áfram námi (numerus clausus). Þessi kvóti var hækkaður um
fjóra haustið 1999. Tólf voru að þreyta prófið í fyrsta sinn. tuttugu í annað og átta í
þriðja sinn. Á síðustu árum hafa engir erlendir stúdentar verið meðal þeirra.
Haustið 2000 innrituðust 211 nýir nemendur í deildina. 172 fóru í samkeppnispróf-
ið og 98 þeirra stóðust. Fjörutíu þessara nemenda. með hæstu einkunnirnar,
héldu áfram námi í deildinni (27 konur og 13 karlar).
Sjö erlendir stúdentar voru í námi við deildina (einn á 5. ári og sex skiptinemar).
Fimm stúdentar læknisfræðiskorar stunduðu nám erlendis sem skiptinemar
samkvæmt Nordplus eða Erasmus-styrkjakerfunum.
Deildarstjórn vinnur að því að breyta núverandi fyrirkomulagi á fyrrnefndum sam-
keppnisprófum. Stefnt er að nýju inntökuprófi í samvinnu við tyfjafræðideild.
sjúkraþjálfunarskor læknadeildar og tannlæknadeild sem haldið verður strax að
toknu stúdentsprófi vorið 2002. Áformað er að prófa úr nokkrum meginþáttum
námsefnis framhaldsskólastigsins. sem tengjast tæknisfræði og skyldum grein-
um.
Alls luku 33 nemendur embættisprófi í læknisfræði árið 2000.
Reynir Tómas Geirsson prófessor var formaður kennsluráðs. sem tók til starfa í
byrjun árs eftir sameiningu kennstunefndar og námsskrárnefndar. Hið nýja ráð
sameinar verkefni þessara tveggja fyrri nefnda. Átak var gert [ því að bæta
kennsluhætti með þvf að stefna að aukinni vandamiðari kennslu (probtem-based
learning). í því skyni fóru 5 af kennurum deildarinnar og kennslustjóri tit háskól-
ans í Albuquerque í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum til að kynna sér þessar aðferðir
á vikulöngu námskeiði en því var svo fylgt eftir með heimsókn prófessors Ste-
warts Mennin frá sama stað hingað tit lands í maímánuði. Mennin kenndi völdum
hópi kennara í færnibúðum. Þeir eiga að leiða nýskipun í kennstuháttum í deild-
inni. Fjölsóttur og góður kennslufundur var haldinn í nóvember, þar sem rætt var
um nýja námsskrá sem áformað er að koma á árið 2002 og ný prófform sem
nokkrir kennarar deildarinnar hafa tekið upp. Áfram var unnið að því að koma
hluta kennstuefnis á heimasíður tölvunetsins. Reynt hefur verið að breyta stunda-
skrá og stytta kennslustundir en auka kennslu í minni hópum. Vísir að færnibúð-
um (skills taboratory) var áfram í húsnæði námsbrautar í hjúkrunarfræði. þar
sem nemendur á öðru ári fá grunnþjálfun í klínískri skoðun áður en þeir fara í
starfskynningu á heilsugæslustöðvar og sjúkrahús.
68