Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Side 81
Rannsóknir
Eins og undanfarin ár stunduðu kennarar tannlæknadeildar rannsóknir á fræða-
sviðum sínum, s.s. tannheilsu íslendinga, tangtímaáhrifum tann- og bitskekkju,
andlitsformi. tannlæknaótta, tíðni og eðli andtitsbeinbrota, tíðni og þróun tann-
holdsbólgu. glerungseyðingu. bakteríum sem valda tannskemmdum og tann-
hotdssjúkdómum. áhrifum og einkennum hálsslinksáverka o.fl. Sum þessara
verkefna eru unnin í samvinnu við aðrar deildir Háskólans. t.d. þróun tyfja við
munnsjúkdómum í samvinnu við tyfjafræði lyfsata. Samvinna við evrópska og
bandaríska háskóla er einnig töluverð. Kennarar við tanntæknadeitd tóku þátt í
fjölþjóðarannsóknarverkefni, sem styrkt var að hluta tit af Evrópubandataginu,
svokaltaðri Biomed-áætlun. Fimm kennarartóku þátt í tveimur verkefnum styrkt-
um af Evrópubandataginu. annað þeirra kaltaðist „Harmonisation of a European
Medical Risk Retated History". Hinu verkefninu er nýlokið en það var könnun á
tíðni flúorflekkja sem var gerð í sjö Evróputöndum. Eftir er að birta niðurstöður
þessara rannsókna í vísindatímaritum. Nemendur hafa líka stundað rannsóknir í
auknum mæti. bæði með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og aðstoðar-
mannasjóði. Nánari upplýsingar um rannsóknaverkefni á sviði tannlæknadeitdar
er í Rannsóknagagnasafni íslands. Slóðin er: www.ris.is
í apríl fóru tveir nemendur tit Kaupmannahafnar til að kynna rannsóknaverkefni
sín í svonefndri Dentsply-keppni. Verkefnin voru unnin í samvinnu við læknadeild
og einn læknanema.
Ánægjutegt er að ártega finna æ fleiri nemendur tíma til að stunda rannsóknir.
þrátt fyrir mjög þétta stundaskrá í hefðbundnu námi. Árið 2000 höfðu þrír af sex
brautskráðum nemendum tokið rannsóknarverkefni sem vatgrein.
Verkfræðideild
Stjórn
Embættismenn verkfræðideildar bæði misseri ársins 2000 voru þessin Vatdimar
K. Jónsson deildarforseti, Jónas Elíasson varadeildarforseti. Ragnar Sigbjörns-
son, formaður umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar. og Magnús Þór Jónsson.
formaður véta- og iðnaðarverkfræðiskorar. Formaður rafmagns- og tölvuverk-
fræðiskorar á vormisseri var Anna Soffía Hauksdóttir en Jóhannnes R. Sveinsson
á haustmisseri. Frá upphafi haustmisseris 2000 færðist tölvunarfræðiskor úr
raunvísindadeitd yfir í verkfræðideild og var Haltdór Guðjónsson formaður hennar
þar til í september er hann tét af störfum samkvæmt eigin ósk og við tók Jóhann
P. Malmquist. Sameiginlegur fulttrúi verkfræði- og raunvísindadeilda í háskóta-
ráði var Guðmundur G. Haraldsson. Vatdimar K. Jónsson fyrsti varamaður og
Gísti Már Gíslason annar varamaður. Futltrúar deildar til setu á háskótafundi auk
deildarforseta, sem er sjálfkjörinn. voru kjörnir Jón Atti Benediktsson og Oddur
Benediktsson.
Stefnumál og framkvæmd þeirra
Árið 2000 kom til framkvæmda ftutningur tölvunarfræðiskorar úr raunvísindadeild
yfir í verkfræðideitd. Einnig héldu áfram umræður. bæði innan deitdar og við aðila
utan hennar. um upptöku tæknináms og arkitektanáms. Viðræður fóru fram mitli
fulttrúa deildarinnar og stjórnar Tæknifræðingafélags íslands um uppbyggingu
tæknilínu innan verkfræðideitdar sem þeir nemendur deildarinnar gætu nýtt sér
sem eiga í erfiðleikum með hið mikla stærðfræðinám í verkfræðinni.
Þá varstofnað Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar á (slandi en
að því standa Háskóli íslands. Háskótinn á Akureyri. Samtök iðnaðarins. Tækni-
fræðingafélag ístands og Verkfræðingafélag íslands. í stjórn félagsins eru Bjarni
Bessason (H.Í.). Bjarni Harðar (HA). Ingi Bogi Bogason (Si). Bergþór Þormóðsson
(TFÍ) og Ragnheiður Þórarinsdóttir (VFÍ)
Miklar umræður hafa farið fram innan deildarinnar um uppbyggingu nýrra náms-
leiða innan deildarinnar og mun árangri þeirrar viðleitni sjá nokkurn stað í
Kennsluskrá Háskólans háskólaárið 2001-2002. Meðal þeirra námsteiða sem eru
í uppbyggingu. auk hugsanlegrar tæknilínu og arkitektanáms, eru efnaverkfræði
(sjá kaflann Samstarf). iðnaðarverkfræði og hugbúnaðarverkfræði.
Skipuð hefur verið sérstök þróunarnefnd sem hefur það htutverk að fjalla um
stefnumörkun og þróun verkfræðideildar. tengsl hennar við aðrar deildir, skóta og