Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 86
kostnað sinn og greiðir Háskólanum markaðsverð fyrir alla þá aðstöðu er hún
nýtir í skólanum. svo sem húsnæði. rafmagn, hita og ræstingu.
Gagnasöfn
Sem fyrr sinnir stofnunin hagnýtum þjónusturannsóknum samhtiða öflun gagna
fyrir fræðitegar rannsóknir. Félagsvísindastofnun hefur byggt upp viðamikið
gagnasafn með upplýsingum um velferðarmál. menntamál. kjaramál. húsnæðis-
mál, atvinnumál. byggðamál. stjórnmál. fjölmiðla. neysluhætti, fjölskyldumát.
menningu og atmenn þjóðmál. Gögnin ná til upplýsinga um aðstæður. skilyrði og
viðhorf fólks og þar á meðal eru gögn sem aflað hefur verið með reglubundnum
hætti um árabil, til dæmis ýmsar upplýsingar um atvinnu. menntun, tekjur, fytgi
stjórnmálaflokka og þjóðmát.
Félagsvísindastofnun hefur tekið þátt í fjölþjóðlegu rannsóknarstarfi á síðustu ár-
um. til dæmis á sviði lífskjara- og velferðarrannsókna og rannsókna á lífsskoðun-
um og viðhorfum. Stofnunin hefur aðgang að gögnum um lífsskoðun og viðhorf
frá rúmlega 40 löndum og gögnum um lífskjör og lífshætti alls staðar að af Norð-
urlöndunum.
Stofnunin hefur eins og á fyrri árum gert rannsóknir fyrir ráðuneyti og opinberar
stofnanir. hagsmunasamtök og almenn félagasamtök. ftesta fjölmiðla landsins.
einstaka rannsóknarmenn og fyrir fjötda fyrirtækja. Hagnaði af starfseminni er
varið tit að kosta fræðilega gagnaöflun og til að byggja upp tækjabúnað og hug-
búnað. Þá hefur stofnunin einnig varið umtalsverðu fé til að kosta útgáfu fræði-
legra rita á sviði félagsvísinda.
Á síðustu árum hefur stofnunin aukið mjög útgáfu fræðirita. Þá hefur verið tekið
upp það nýmæli að aðstoða nemendur í M.A.-námi auk þess sem stofnunin hefur
skotið skjólshúsi yfir og haft samstarf við félagsvísindafólk sem vinnur að sjálf-
stæðum rannsóknum. Allmargir meðlimir fétagsvísindadeildar hafa notað sér
þjónustu stofnunarinnar á síðastliðnum þremur árum og nokkrir hafa einnig haft
umsjón með verkefnum á vegum hennar.
Rannsóknir
Viðamestu rannsóknarverkefni Fétagsvísindastofnunar árið 2000 voru kannanir á
lífsskoðunum og framtíðarsýn við aldamót, á tífsskoðunum ungs fólks í vesturn-
orrænum löndum. á námsferli fótks fætt árið 1975. og á vinnuviðhorfum og kjara-
málum verslunarmanna.
Könnun á lífsskoðunum og framtíðarsýn við aldamót var gerð í flestum löndum
Evrópu og Ameríku á sama tíma. Sams konar könnun var gerð 1990 og gefur það
möguleika á samanburði. hvort hetdur sem er milti þjóðfélaga eða innan þeirra.
Könnun á lífsskoðunum ungs fótks í vesturnorrænum löndum var gerð að beiðni
vestnorræna ráðherraráðsins og gefur hún haldgóðar vísbendingar um líklega
þróun samfélagsins á komandi árum auk þess að vera gagnabanki um stöðu
mála þegar hún var gerð.
Kannanir á kjaramálum og vinnuviðhorfum verslunarmanna voru annars vegar
unnar fyrir VR og hins vegar landssamband íslenskra verslunarmanna. Meginvið-
fangsefni voru viðhorf tit starfs. vinnustaðar og kjaramála. Samanburður var
gerður á viðhorfum og kjaramálum VR-félaga og félagsmanna annarra aðildarfé-
laga LÍV.
Námskeið
Félagsvísindastofnun bauð nýnemum í félagsvísindadeild upp á stutt inngangs-
námskeið í tötvunotkun. Námskeiðið var haldið í ágúst. Stefnt er að því að auka
þennan þátt í starfsemi stofnunarinnar.
Félagsvísindastofnun. í samstarfi við sálfræðiskor. keypti einkarétt á íslandi að
halda námskeið sem nefnast SOS! Hjálp fyrir foreldra. Um er að ræða námskeið
þar sem fólk er þjálfað í því að nota ýmsar meginreglur atferlisfræði við uppeldi
barna. Nú þegar hafa tvö námskeið verið haldin fyrir kennara og almenning.
Starfsmenn
Starfslið Fétagsvísindastofnunar í reglubundnu starfi árið 2000 var sem hér segin
Bylgja Valtýsdóttir. Guðtaug J. Sturludóttir. Gunnar Þór Jóhannesson. Hrefna Guð-
mundsdóttir. Ingibjörg Katdalóns. Kristjana Stella Blöndal. Lára K. Sturludóttir og
Ævar Þórólfsson.
82