Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Qupperneq 123
Innlent samstarf
Við Greiningarstöð ríkisins, Tryggvi Sigurðsson, samskiptavandamál fatlaðra. Fyr-
irlestur við sálfræðiskor Háskólans og boð um fyrirlestrahald frá íslenskri erfða-
greiningu (haldinn 26.01.01), Kennslubraut í hjúkrun og Rannsóknastofnun land-
búnaðarins.
Ráðstefnuhald og fyrirlestrar
Rannsóknastofan annaðist skipulagningu tveggja fjölþjóðlegra rástefna og tók
þátt í öðrum ráðstefnum og annaðist fyrirlestrahaldi í Bretlandi, Portúgal, Spáni.
Frakklandi, Hollandi, Finnlandi, Ítatíu og Japan:
• Önnur rástefna hins evrópska hóps (nets) um „aðferðafræði fyrir rannsóknir á
mannlegum samskiptum" í febrúar við Parísarháskóla. Skipulögð af Binet
sálfræðistofnuninni í Sorbonne og RMA. Fyrirlesarar voru prófessorar og rann-
sóknafólk frá viðkomandi háskólum, m.a. MSM. Tryggvi Sigurðsson og
Guðberg K. Jónsson frá RMA.
• í lok júlí skipulagði RMA ráðstefnuna „Behavior and Time" við Háskóla íslands,
m.a. með þátttöku þriggja prófessora frá The University Chicago og Keio
University. Tokyo. Japanirnir lýsa áhuga á reglulegri endurtekningu
ráðstefnunnar hér. Örn Bragason gegndi lykilhlutverki í skipulagningu
ráðstefnunnar.
Nær allir fyrirlestrar á ofannefndum ráðstefnum vörðuðu rannsóknir á grundvelli
formgerðarlíkans MSM. (Sjá: Magnusson, M. S. (2000). „Discovering hidden time
patterns in behavion T-patterns and their detection." Behavior Research Methods,
Instruments and Computers. Vol 32. nr. 1. bls. 93-110).
Fyrirlestrar og vinnustofur í Japan
MSM hélt fyrirlestra og stjórnaði vinnustofum við sálfræði- og hátternisfræði-
deildir Keio-háskóla og fjögurra annarra háskóla íTokyo. Osaka og nærliggjandi
borgum. ásamt Tokyo Technical University. Þessi verkefni voru styrkt af Sasakawa
Foundation og Atferlisgreiningu ehf, en skiputögð af Keio-háskóla, Tokyo.
Annað
• MSM hélt fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum um „semiotics" í Finnlandi og
Portúgal og þáði boð um að ritstýra einu tölublaði „Semiotik" í Berlín sem
helgað yrði viðfangsefni MSM:
• MSM hélt fyrirlestra við Universidad de La Rioja á Spáni og ráðstefnuna
„Measuring Behavior 2000" í Hollandi og þáði þar boð um fyrirlestrahald frá
Konrad Lorenz Institut í Vín.
• Guðberg K. Jónsson, RMA, hélt fyrirlestra í Bretlandi. Holtandi. Ítalíu og
Frakkland m.a. um doktorsrannsóknir sínar varðandi sjálfsmynd og formgerð
samskiptaatferlis.
Sprotafyrirtæki
í framhaldi af rannsóknum á RMA voru stofnuð tvö sprotafyrirtæki, SportScope á
íslandi ehf og Atferlisgreining ehf sem munu þróa áfram Theme hugbúnaðinn
sem MSM hefur þróað fyrir atferlisrannsóknir.
Rannsóknastofnun í
hjúkrunarfræði
Almennt yfirlit, stjóm og starfslið
Stjórn Rannsóknastofnunar 2000 skipuðu: Marga Thome dósent, formaður til 1.
september er hún fór í rannsóknarleyfi. Við tók Helga Jónsdóttir dósent. sem var
áður varaformaður. Aðrir kennarar voru Erla K. Svavarsdóttir dósent, Herdís
Sveinsdóttir dósent og Margrét Gústafsdóttir dósent. Fulltrúi meistaranema var
Ingibjörg Elíasdóttir og síðan Ólöf Kristjánsdóttir. Starfsmenn: Páll Biering sér-
fræðingur. 1. október var hann endurráðinn sérfræðingur stofnunarinnar til
tveggja ára að undangengnum hæfnisdómi. Ritari í 20% starfi er Ingibjörg Inga-
dóttir. starfsmaður á skrifstofu hjúkrunarfræðideildar. Marga Thome sótti um
styrk í Aðstoðarmannasjóð Háskóla íslands til að ráða Sigrúnu A. Qvindesland til
að vinna að undirbúningi þjónusturannsóknar. Annað starfslið stofnunarinnar eru
fastráðnir kennarar hjúkrunarfræðideildar. Skrifstofustjóri hjúkrunarfræðideildar
sér um fjárhagslegt bókhald.