Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 126
Auk hinna erlendu sérfræðinga stunduðu sérfræðingar Líffræðistofnunar marg-
víslegar rannsóknir við stöðina og nemendur við tíffræðiskor nutu aðstöðunnar
við rannsóknir sínar. Halldór P. Halldórsson vinnuratla rannsóknarvinnu meist-
aranáms síns í stöðinni. Það felst í beitingu á lífeðlisfræði kræklings til að meta
mengun í sjó.
Á stöðinni fór einnig fram kennsla á vegum tíffræðiskorar. Á haustmánuðum fór
umfangsmikitl verklegur þáttur námskeiðsins Sjávarhryggleysingjar fram í stöð-
inni. Stöðin lagði einnig til mikinn efnivið til verklegar kennslu í greinum er fást
við lífríki sjávar.
Ra u nvísi n dastof n u n
Almennt
Raunvísindastofnun Háskótans er sjátfstæð rannsóknastofnun innan Háskóta ís-
lands og starfar samkvæmt reglugerð. Á stofnuninni er unnið að grunnrannsókn-
um í raunvísindum öðrum en líffræði. Þær hafa að markmiði að afta nýrrar þekk-
ingar, miðla fræðitegum nýjungum og efla rannsóknirog kennslu. Niðurstöðum
rannsókna er komið á framfæri í tímaritsgreinum. bókaköflum og skýrslum og í
erindum á ráðstefnum og fyrirtestrum fyrir almenning. Stofnunin hefurvíðtækt
samstarf við aðrar innlendar og ertendar rannsóknastofnanir. Þá veitir hún aðil-
um utan Háskótans fjölþætta ráðgjöf og þjónustu. Starfsemi Raunvísindastofnun-
ar Háskólans var fjármögnuð með fjárveitingu af fjártögum. 171 m.kr. og með
sértekjum. 149 m.kr. ýmist úr rannsóknasjóðum eða frá fyrirtækjum.
Við stofnunina starfa sérfræðingar. tæknimenn og skrifstofufólk. Þá hafa kennarar
raunvísindadeitdar. aðriren líffræðingar, rannsóknaraðstöðu við stofnunina. Stofn-
unin skiptist í rannsóknastofur eftir fræðasviðum og er gerð grein fyrir starfsemi
þeirra hér á eftir. Stjórn RH skipa 9 menn. formaður. forstöðumenn sjö rannsókna-
stofa, eðtisfræðistofu. efnafræðistofu, jarðeðlisfræðistofu. jarð- og landfræðistofu.
lífefnafræðistofu. reiknifræðistofu og stærðfræðistofu. og einn fulttrúi starfsmanna.
Framkvæmdastjóri er ritari stjórnar. Alts störfuðu 145 manns við stofnunina á ár-
inu: 50 kennarar með rannsóknaraðstöðu. 46 sérfræðingar, 38 sumarstúdentar og
nemar í framhaldsnámi. 7 á skrifstofu og tveir á verkstæði. Stöðugildi skv. fjárlög-
um við stjórnsýslu voru 8 og stöðugitdi við rannsóknir voru 33.
Itarlegri upplýsingar er að fá á heimasíðu stofnunarinnar www.raunvis.hi.is
Eðlisfræðistofa
Árið 2000 var eðlisfræðistofa rannsóknarvettvangur tíu kennara við raunvísinda-
deild auk þriggja sérfræðinga og þriggja tæknimanna við Raunvísindastofnun Há-
skólans. Einnig störfuðu þrír verkefnaráðnir sérfræðingar og tveir verkefnaráðnir
tæknimenn á stofunni. Stúdentar í rannsóknanámi árið 2000 voru þrír, þar af tveir
í doktorsnámi. Upptatningu rannsóknaverkefna og ritverka stofufélaga má finna á
heimasíðu eðtisfræðistofu undir stóðinni: http://www.raunvis.hi.is/Edlisfr/Edl-
isfr.html
Eðlisfræðistofa heldur vikulega fundi sem auglýstir eru á netinu og meðal stúd-
enta. Þar eru rannsóknir ræddar á aðgengitegan hátt og erlendum gestum boðið
að halda erindi.
Unnið var að fjölmörgum rannsóknaverkefnum á stofunni á árinu. frá heims-
myndarfræði til kerfis atóma og rafeinda á nanóskala og frá rannsóknum á vetni
sem orkugjafa til íbætingar nýrra hálfleiðarakerfa og ræktunar kristalla.
Viðar Guðmundsson prófessor með rannsóknaaðstöðu á eðlisfræðistofu og Hann-
es Jónsson prófessor með rannsóknaaðstöðu á efnafræðistofu keyptu á árinu
með titstyrk Bygginga- og tækjasjóðs Vísindaráðs og Háskóla íslands tölvuþyrp-
ingu til samhtiðakeyrslu líkana í eðlisfræði þéttefnis og eðlisefnafræði. Um er að
ræða 16 öflugarvélar með alpha örgjörvum sem allargeta unnið að sama reikni-
verkefninu samtímis. Þyrpingin hlaut nafnið nano.raunvis.hi.is enda mun hún
verða notuð við líkanagerð kerfa á nanóskala. Fyrstu reikningar Viðars á þyrping-
unni snerust um ís og Ijós í skammtapunktum og seguleiginleikum þeirra. Birgir
122