Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Page 181
listasögu frá University of Washington í Seattle árið 1945. MA-prófi í sömu aðal-
greinum ásamt miðaldasögu lauk hún frá sama skóla árið 1961. Elsa vann að
stofnun handavinnudeildar Kennaraskóla íslands 1947 og kenndi þar og víðar þar
til hún varð sérfræðingur í textíl- og búningafræðum við Þjóðminjasafn íslands
árið 1963 og deildarstjóri árin 1985-1994. Hún hefur jafnframt stundað kennslu í
sérgrein sinni og haldið fyrirlestra við Kennaraháskóla íslands. Myndlista- og
handíðaskóla íslands og Háskóla íslands. Einnig hefurhún haldið vísindaleg er-
indi um sömu efni á fjölmörgum þingum og ráðstefnum víða um heim.
Elsa hefur verið ótvíræður brautryðjandi á sviði textíl- og búningafræði hérlendis.
Vinnubrögð hennar einkennast af stakri vísindalegri nákvæmni og hún hefur
dregið fram í dagsljósið mikla vitneskju úr handritum og lítt kunnum heimildum.
Þannig hefur hún varpað Ijósi á lítt könnuð svið íslenskrarsögu, m.a. hvað varðar
myndlist. handíðir og þjóðhætti ýmiss konar. Auk framlags síns á sviði vísinda-
legra rannsókna hefur Elsa lagt sig fram um að kynna niðurstöður sínar fyrir al-
menningi og öllum þeim sem fást við hannyrðir. Þetta hefur hún gert með bókum,
ritgerðum, fyrirlestrum og í sjónvarpi enda hefur það færst í vöxt að hannyrða-
konur séu aftur teknar að nýta sér fornar aðferðir við gerð altarisklæða og annars
kirkjubúnaðar. auk klæðasaums og vefnaðar. Elsa hefur verið afar afkastamikill
rithöfundur á sínu sérsviði og fyllir ritaskrá hennar um 30 blaðsíður.
Af þessum sökum telur Háskóli (slands sér sæmdarauka að heiðra Elsu E. Guð-
jónsson með titlinum doctor philosophiae honoris causa. Sé það góðu heilli gert
og vitað.
Stefán Karlsson
Stefán Karlsson erfæddur2. desember 1928. Hann lauk stúdentsprófi frá stærð-
fræðideild Menntaskólans á Akureyri 1948 og magistersprófi í norrænni fílólógíu
frá Hafnarháskóla 1961. Hann var styrkþegi Árnanefndar í Kaupmannahöfn árin
1959-1961 og var ráðinn í rannsóknarstöðu við Det amamagnæanske institut frá
vori 1962 til vors 1970. Frá 1970 til 1994 var hann fastráðinn sérfræðingur við
Handritastofnun Islands og síðarStofnun Árna Magnússonará íslandi. Forstöðu-
maður sömu stofnunar og prófessor við heimspekideild var hann frá 1994 til árs-
loka 1998.
Stefán er einn virtasti sérfræðingur á sviði íslenskrar fornskriftar- og textafræði
og hefur með rannsóknum sínum lagt fram mikilvægan skerf til þekkingar á ís-
lenskum handritum. íslenskri tungu og bókmenntum. Fyrsta stórvirki Stefáns
kom út árið 1963 en það var verkið Islandske originaldiplomer ind til 1450. Stefán
sýndi og sannaði með þessari útgáfu að hann er afburðaglöggur handritalesari en
sérstaklega merk er umfjöllun hans um skrifarahendur í þessari útgáfu. Stefán
hefur ekki einungis borið saman hendur á öllum bréfunum sem eru birt í útgáf-
unni heldur hefur hann einnig leitað þessara handa í yngri bréfum, bréfabókum
og öðrum handritum. Undirbúningur að þessum útgáfum og rannsóknir í sam-
bandi við þær hafa orðið tit þess að Stefán hefur aflað sér meiri vitneskju en
nokkur maður annar um þróun skriftar fram til siðaskipta á íslandi og um ís-
lenska málsögu er hann flestum mönnum fróðari.
Af þessum sökum telur Háskóli íslands sér sæmdarauka að heiðra Stefán Karls-
son með titlinum doctor philosophiae honoris causa. Sé það góðu heilli gert og
vitað.
í raunvísindadeild
Baldur Rosmund Stefánsson
Baldur Rosmund Stefánsson er fæddur í Vestfold Manitoba árið 1917. Hann lauk
B.S. prófi frá plöntuvísindadeild Manitobaháskóla árið 1950, meistaraprófi frá
sama skóla árið 1952 og doktorsprófi árið 1966. Baldur varð sérfræðingur við
plöntuvísindadeild Manitobaháskóta árið 1952 og starfaði við þá deild alla sína
starfsævi. Hann varð dósent árið 1966 og prófessor árið 1974. Frá árinu 1987 hef-
ur Baldur verið prófessor emeritus við Manitobaháskóta.
Vísindastörf Baldurs hafa einkum beinst að betrumbótum á nytjaplöntum með
erfðafræðitegum aðferðum. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á kynbætur repju
(Brassica napus) tit framleiðslu matarolíu. en repja hentar einkar vet til ræktunar
á katdari landsvæðum Kanada. Á árabilinu 1964-1985 þróaði Baldurfjölda af-
brigða af repju- og sojaplöntum fyrir Kanada. Það er ekki síst vegna þessa fram-
lags Baldurs til rannsókna. sem Kanada stendur framartega í framleiðslu olíu-