Búnaðarrit - 01.06.1919, Qupperneq 85
BÚNAÐARRIT
195
góðum kjörum, en henni hefir ekki unnist tími til að rann-
saka þetta mál til hlftar, s. s. hverjar reglur Stjórnarráðið
hefir tekið upp 1 þessu efni og hvernig það hefir framfylgt
þeim. Mun því eigi gera tillögu um málið.
Hmsvegar vill nefndin láta i Ijósi það álit sitt, að það sje
eitt verulegt spor í áttina til aukinnar jarðræktar, að lbúum
kauptúna gefist kostur á landi til ræktunar með erfðafestu-
rjetti um ótakmarkaðan eða ákveðinn tíma, er eigi mætti
styttri vera en 75 ár. með góðum kjörum, og leyfir sjer að
beina til stjórnar Búnaðarfjelagsins áskorun um, að hún taki
málið til rækilegrar íhugunar og sendi siðan Stjórnarráðinu
álit sitt og tillögur.
24. Um láusstofnun fyrir búnað. Frá jarðræktarnefnd.
Nefndin hefir tekið þetta mál til yfirvegunar. Álítur brýna
nauðsyn á, að komið vetði upp sjerstakri lánsstofnun fyrir
búnað, þar sem mönnum gefist kostur á að fá hagfeld lán,
með afborgunarskilyrðum, er sjeu í samræmi við væntanleg-
an arð af þeim fyrirtækjum sem ráðist er í, sjerstaklega með
það fyrir augum, hve fljótt þau geti borgað stofnkostnað
þann sem af fyrirtækinu leiðir.
Nefndin leggur því til, að búnaðarþingið samþykki að fela
stjórn fjelagsins að undirbúa þetta mál, og hlutast til um að
lögtjafarvaldið taki það til meðferðar, svo að búnaðarbanki
veiði stofnaður sem fyrst.
25. Nefndnrálit. Frá fjárhngsuefnd;
Nefndin hefir hagað áætlun sinni í samræmi við þann vilja
búnaðarþingsins, að gera nú þær fjárkröfur til ríkissjóðs, sem
nauðsynlegar virðast, ef fjelagið á að hafa þeim starfskröftum
á að skipa og þau fjárráð með höndum, sem þörf er á, til
þess að von sje um að þeim kröfum geti orðið sint, sem til
þess eru gerðar.
Fjárhagsáætlunin, eins og hún er nú, er að mestu leyti
bygð á samþyktum, er þegar hafa verið gerðar hjer á búnað-
arþingi, og er því óþarft að gera sjerstaka grein fyrir þeim
einstöku liðum.
Að eins viljum vjer taka það fram, að vjer teljum sjálf-
sagt að stjórnin hafi framvegis, svo sem hingað til, frjalsar
*13