Hugur - 01.01.1991, Síða 33
HUGUR
W. V. Quine
31
Kant hugsaði sér að rökhæfing eignaði frumlagi sínu einungis það
sem þegar fólst í hugtakinu um frumlagið. Það eru tveir gallar á
þessari hugmynd: hún einskorðast við staðhæfingar með sniðinu
frumlag-umsögn, og hún styðst við líkinguna „að felast í“ sem ekki
eru gerð nein nánari skil. En hugsun Kants sem fremur birtist í því
hvernig hann notfærir sér hugmyndina um rökhæfingar en hvemig
hann skilgreinir hana, má umorða á eftirfarandi hátt: staðhæfing er
rökhæfing þegar hún er sönn óháð staðreyndum vegna þess skilnings
sem í hana er lagður. Við skulum athuga þetta nánar með því að
gaumgæfa hugtakið skilning sem hér er gengið að sem gefnu.
Minnumst þess fyrst að ekki má leggja skilning og merkingu að
jöfnu.' Dæmi Freges um „Kvöldstjömuna" og „Morgunstjörnuna" og
Russells um „Walter Scott“ og „höfund Waverly" sýna að heiti geta
merkt sama hlutinn en þó verið skilin mismunandi skilningi.
Greinarmunur skilnings og merkingar er ekki síður mikilvægur á
sviði sértækra heita. Heitin „9“ og „tala reikistjarnanna" merkja eitt
og sama sértæka fyrirbærið en væntanlega verður að telja okkur skilja
þau ólíkum skilningi; því að stjarnfræðilegrar athugunar þurfti við, en
ekki einungis athugunar á skilningi orðanna, til að ákvarða að um
sama fyrirbæri væri að ræða.
Dæmin hér að ofan eru um eintæk heiti á hlutum eða sértökum.
Hliðstæða sögu er að segja um altæk heiti, eða umsagnir, en þó
gegnir þar að sumu leyti öðru máli. Eintæk heiti eiga að merkja
sértæk eða hlutbundin fyrirbæri, en altæk heiti ekki; en altæk heiti eru
sönn um eitthvert fyrirbæri eða um mörg eða engin.1 2 Mengi allra
fyrirbæra sem altækt heiti er satt um nefnist umtak heitisins. Á
hliðstæðan hátt og við greinum á milli skilnings eintæks heitis og
fyrirbærisins sem það merkir, verðum við einnig að greina á milli
skilnings altæks heitis og umtaks þess. Þó svo altæku heitin „dýr með
hjarta“ og „dýr með nýru“ hafi til dæmis sama umtak, leggjum við
ólíkan skilning í þau.
Ekki er eins algengt að rugla saman skilningi og umtaki altækra
heita og rugla skilningi eintækra heita saman við það sem þau
merkja. I heimspe.ki er reyndar viðtekið að gera greinarmun á inntaki
1 Sjá From a Logical Point ofView, s. 9.
2 Sjá sama rit, s. 10 og 107-115.