Hugur - 01.01.1991, Page 46

Hugur - 01.01.1991, Page 46
44 Tvœr kreddur raunhyggjumanna HUGUR segja að staðhæfingar í tilgreindum flokki séu sannar talist túlkunar- reglur -— þá mundu öll sannindi vera „rökhæfingar“ í þeim skilningi að vera sönn samkvæmt túlkunarreglum. Að því er virðist er einungis hægt að þekkja túlkunarreglur af þeirri staðreynd að þær birtast á blaðsíðu undir fyrirsögninni „Túlkunarreglur"; og þá er sjálf fyrirsögnin alveg óskiljanleg. Raunar getum við sagt að staðhæfing sé rökhœfing-í-M(1 þá og því aðeins að hún sé sönn samkvæmt tilteknum „túlkunarreglum" sem er sérstaklega hnýtt aftan við, en þá erum við eiginlega komin aftur að því sama og við fjölluðum um upphaflega; „S er rökhæfing-í-AÍ„ þá og því aðeins að ...“. Ef við reynum að skýra „S1 er rökhæfing í M“ fyrir breytu ,JW“ almennt (jafnvel þótt við takmörkuðum ,M“ við gervimál), er skýringin „sönn samkvæmt túlkunarreglum í A/“ gagnslaus; því að venslaheitið „túlkunarregla í“ þarfnast að minnsta kosti jafn mikillar skýringar við og „rökhæfing í“. Það gæti verið lærdómsríkt að bera saman hugmyndina um túlkun- arreglur og hugmyndina um frumsetningar. Með hliðsjón af ákveðnu mengi frumsetninga er auðvelt að segja hvað frumsetningar eru: þær eru stök í menginu. Jafn auðvelt er að segja hvað túlkunarregla er með hliðsjón af gefnu mengi túlkunarreglna. En hver getur sagt hvaða sannar staðhæfingar ákveðins táknkerfis, stærðfræðilegs eða annars, eru frumsetningar að engu öðru gefnu en táknkerfinu, sama hversu gjörskilið það væri með tilliti til þýðinga á staðhæfingum þess á önnur kerfi eða skilyrði fyrir sannleika þeirra? Það er augljóslega ekkert vit í spurningunni — álíka mikið vit og að spyrja hvaða staðir á Suðurlandi séu upphafsstaðir. Sérhvert endanlegt úrval staðhæfinga (eða óendanlegt ef hægt er að tilgreina það; ef til vill helst sannra staðhæfinga) er ekkert síður mengi frumsetninga en hvað annað. Orðið „frumsetning" verður ekki skilið án tilvísunar til ákveðins athugunarefnis; við höfum orðið aðeins um mengi staðhæfinga að því marki sem við reynumst vera að hugsa, þetta árið eða þessa stunduna, um þær í tengslum við aðrar staðhæfingar sem leiða má af þeim með einhverjum röksemdum sem okkur hefur þótt hæfa að beina athyglinni að. Hugmyndin um túlkunarreglur er ámóta skiljanleg og skynsamleg og hugmyndin um frumsetningar ef hún er hugsuð á álíka afstæðan hátt — í þetta sinn með tilliti til uppfræðslu vankunn- andi fólks um nægileg skilyrði fyrir að staðhæfingar teljist sannindi í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.