Hugur - 01.01.1991, Page 55
HUGUR
W. V. Quine
53
reynslu með endurmati á ýmsum mismunandi hlutum þess; en í
tilfellunum sem við nú gerum okkur í hugarlund mundi eðlislæg
tilhneiging okkar til að raska heildarkerfinu sem minnst leiða okkur
til að beina endurmati okkar að þessum ákveðnu staðhæfingum um
múrsteinshús og nykra. Okkur virðast því þessar staðhæfingar fela í
sér beinni tilvísun til reynslunnar en fræðilegar staðhæfingar
eðlisfræði, rökfræði eða verufræði. Líta má svo á að síðarnefndu
staðhæfingamar séu staðsettar nálægt miðju heildarkerfisins, sem
þýðir einfaldlega að lítið er um að forgangstengsl við ákveðnar skyn-
reyndir komi í ljós.
Sem raunhyggjumaður tel ég hugtakakerfi vísindanna eftir sem
áður verkfæri sem í raun er ætlað að segja fyrir um komandi reynslu í
ljósi liðinnar reynslu. Efnislegir lilutir koma sem hugtök inn í
aðstæðurnar sem hentugt millistig — ekki samkvæmt skilgreiningu út
frá reynslu, heldur einfaldlega sem ósmættanleg festi,18 þekkingar-
fræðilegar hliðstæður guða Hómers. Sem áhugamaður um eðlisfræði
trúi ég á efnislega hluti og ekki á guði Hómers; og ég tel það vísinda-
lega villu að trúa öðru. En frá þekkingarfræðilegu sjónarmiði er
enginn eðlismunur á efnislegum hlutum og guðum, heldur einungis
stigsmunur. Báðar þessar tegundir fyrirbæra verða þættir í
hugarheimi okkar einungis sem viðteknar venjur eða festi menningar
okkar. Goðsögnin um efnislega hluti hefur þekkingarfræðilega yfir-
burði vegna þess að hún hefur reynst árangursríkari en aðrar
goðsagnir sem tæki til að koma viðráðanlegri mynd á breytileika
reynslunnar.
Við setjum okkur ekki einvörðungu festi um efnislega hluti sem
greina má berum augum. Til þess að gera lögmál um stærri hluti, og á
endanum lögmál reynslunnar, einfaldari og viðráðanlegri gerum við
ráð fyrir hlutum af stærðargráðu frumeinda; og við þurfum ekki
frekar að búast við eða krefjast endanlegrar skilgreiningar á fyrir-
bærum eins og frumeindum og öreindum út frá sýnilegum fyrir-
bærum en skilgreiningar á sýnilegum hlutum út frá skynreyndum.
Vísindin eru framhald af heilbrigðri skynsemi, og þau halda áfram
því heilbrigða skynsemisráði að bæta við fyrirbærum til þess að
einfalda kenningar.
18 Sjá From a Logical Point ofView, s. 17 o.áfr.