Hugur - 01.01.1991, Side 95

Hugur - 01.01.1991, Side 95
HUGUR Járnhúr skrifrœðis og skynsemi 93 af nokkurri íþrótt og er óvíst mér farnaðist vel í þeirri orrahríð.5 6 Það er þó rétt að geta þess að ég tel kenningu Webers um hlutleysi félagsvísinda, og allra mannlegra vísinda ef út í það er farið, vera óttalega og jafnvel háskalega vitleysu. En fyrir því ætla ég ekki að færa rök núna, heldur hinu að sú stjómmálakenning sem hann laumar inn í sín „hlutlausu" félagsfræði sé ekki bara vitleysa heldur háskaleg kenning þar sem vitleysan er leidd til öndvegis. Vandamálið: Framsókn skynseminnar I Rauði þráðurinn í ævistarfi Max Webers var greining hans á „framsókn skynseminnar". Slík greining liggur til grundvallar sögu- spekinni í Siðfræði mótmœlenda og auðhyggjan og skynsemi í fjórum birtingarformum er meginhugtakið í höfuðriti Webers Þjóðmegun og þjóðfélagf Notkun hans á hugtökunum „skynsemi" og „framsókn skynseminnar" er hins vegar flókin, umdeild og jafnvel ruglingsleg á köflum. Samlandi Webers og sporgöngumaður, JUrgen Habermas, telur ástæðuna fyrir ruglingnum vera þá að Weber notist í greiningu sinni við skynsemishugtak sem taki mið af sjálfsvitund einstaklinga, en viðfangsefni hans, framsókn skynseminnar, sé á sviði mannlegs 5 Sjá Páll Skúlason, „Siðvísindi og læknisfræði" í Pœlingar (I) (Ergo, Reykjavík 1987), s. 155-187; Þorstein Gylfason, Valdsorðaskak (Fjölrit Félags áhugamanna um heimspeki IV, Reykjavík 1984); Vilhjálm Arnason, „Um gæði og siðgæði1' í Greinar um siöferði og samfélag (Háskóli islands, Reykjavík 1985); Gylfi Þ. Gíslason, „Vísindalegt samfélag" í Samtíð og Saga (Reykjavík 1973), s. 51-77. 6 Þýðingarnar á bókarheitum Webers eru hér fengnar úr Inngangi Sigurðar Líndal (sbr. nmgr. 4), en þar er að finna ýmsan fróðleik um ævi Webers, ritstörf og helstu hugmyndir. Ritið Die protestantische Ethik und der Geist des Kapitalismus (Siðfrœði mótmœlenda og auðhyggjan) birtist fyrst í tímaritinu Archiv fúr Sozialwissenschaft und Sozialpolitik á árunum 1904-1905, en Weber var þá annar tveggja ritstjóra þess. Sjá t.d. enska þýðingu Talcott Parsons The Protestant Ethic and the Spirit of Capitalism (Charles Scribner's Sons, New York 1958). Weber lauk ekki fyllilega við höfuðrit sitt, Wirtschafl und Gesellschaft, áður en hann dó og var það gefið út að honum látnum. Sjá enska þýðingu H. H. Gert o.fl. undir ritstjóm Guenther Roth og Claus Wittich, Economy and Society. An Outline of Interpretative Sociology (3 bindi [2 bindi í nýrri kiljuútgáfum] Bedminster Press, New York 1968). Blaðsíðuvísanir innan sviga vísa til þessarar ensku útgáfu sökum þess að hún ein er til á Háskólabókasafni. Sjá cinnig mun aðgengilegri útgáfu á völdum hluta þess mikla efnis sem Þjóðmegun og þjóðfélag hefur að geyma í From Max Weber: Essays in Sociology (Oxford University Press, New York, 1946, 1958), þýtt og ritstýrt af H. H. Gert og C. W. Mills, sem í sameiningu rita injög gagnlegan og ítarlegan inngang.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.