Hugur - 01.01.1992, Side 82
80
Eyjólfur Kjalar Emilsson
HUGUR
nýlegar túlkanir á Descartes eru hugmyndir hans og Plótínosar um
tengsl sálar og líkama, furðu keimlíkar. Niðurstaðan er því sú að
hugmyndir Descartes um sálina standi í veigamiklum atriðum nær
skoðunum fornaldarmanna en því sem nú í dag er kallað cartesísk
hugmynd um sálina.
Það virðist vera útbreidd skoðun að hugmynd nútímamanna um
samband sálar og líkama sé 17. aldar uppfinning sem skrifist að mestu
leyti á reikning Descartes. Til dæmis hafa jafn áhrifamiklir hugsuðir
og Gilbert Ryle og Richard Rorty viðrað slíkar skoðanir.3 I grein sinni
„Why Isn’t the Mind-Body Problem Ancient?" heldur Wallace
Matson því fram á svipuðum nótum, að Grikkir hafi ekki ráðið yfir
hugtakaforða sem hafi leyft þeim að búa til þetta vandamál.4 Þeir sem
aðhyllast þessar skoðanir virðast almennt halda að hugmyndin, sem
vandi þessi sé sprottinn af, sé í grundvallaratriðum röng, og að það
kunni að hjálpa okkur til að losna úr álögum vandans að sjá að þessi
hugmynd er „sérviska“ fremur en sammannleg sannindi. Eg held því
ekki fram að hin cartesíska sálarhugmynd sé þegar allt kemur til alls
sammannleg sannindi, en niðurstöður mínar ganga gegn þeirri
einföldun að ráðgátan um samband sálar og líkama sem samtíma-
heimspekingar nefna svo sé tilbúningur Descartes: sum meginatriði
hennar eru miklu eldri og önnur er alls ekki að finna hjá Descartes.
II
Plótínos telur að eining skynjunarinnar - sú staðreynd að ein og sama
veran geti bæði heyrt, séð og fundið til í senn - sýni að sálin geti ekki
verið neins konar líkami. Þessi skoðun er vaxin upp úr átökum fyrri
grískra heimspekinga við einingu skynjunarinnar, einkum Alexanders
Afrodísíasar, sem var sporgengill Aristótelesar á 3ðju öld e. Kr. og
einn af heldri ritskýrendum hans í fornöld. Við skulum því hyggja
lítillega að eldri grískum skoðunum á þessu efni.
3 Sjá Gilbert Ryle, The Concept of Mind (Harmondsworth 1973), kafli I,
„Descartes' Myth“, s. 13-25, einnig s. 191; Richard Rorty, Philosophy and the
Mirror of Nature (Princeton 1979), lsti kafli, „Invention of the Mind,“ s. 17-69.
4 Sjá Mind, Matter and Metliod: Essays in Philosophy and Science in Honor of
Herbert Feigl, ritstjórar Paul Feycrabcnd og Grover Maxwell (Minneapolis 1966),
s. 92-102.