Hugur - 01.01.1992, Blaðsíða 95
HUGUR
Hvernig Descartes er fornlegur
93
Hvorki í þeim rökum gegn Stóumönnum sem hér hafa verið nefnd,
né annars staðar í ritum Plótínosar er því haldið fram að áreiðanleiki,
mismunandi aðgangur að veruleikanum, eða nokkrir aðrir þekkingar-
fræðilegir eiginleikar skilji að hið sálræna og hið líkamlega. I þessu
efni greinir Plótínos sig frá Descartes og fjölda annarra seinni tíma
heimspekinga, og jafnvel frá Agústínusi að því marki sem hann heldur
fram hinu kartesíanska cogito,26 Raunar er „cogitoið“ ekki að finna
hjá Plótínosi. En jafnvel þó þetta sé bæði rétt og mikilsvert, held ég að
af því megi ekki draga þá ályktun að tvíhyggja Plótínosar sé óskyld
nútíma tvíhyggju. Raunar er ekki til nein ein nútíma tvíhyggja. Til að
mynda fallast afar fáir ef nokkrir nútíma heimspekingar á hugmyndir
Descartes um tengsl sálar og líkama eins og þær koma fyrir. Ef við
lítum til samtímans, þá er hvergi að finna afdráttarlausa tvíhyggju,
heldur margvíslegar ástæður til óánægju með efnishyggju. Ástæður
nútímamanna til óánægjunnar má yfirleitt rekja aftur til Descartes. En
aðeins hluti þeirra er reistur á áreiðanleika hins andlega, sérstæðum
aðgangi að því eða öðrum skyldum hugmyndum. Nú á dögum má til
að mynda finna heimspekinga sem telja það sérkenni á fyrirbærum á
borð við hugsanir og minningar, að þau séu ekki staðsetjanleg í rúmi,
og þeir líta á þetta sem ógnun við smættarhyggju og samsemdar-
kenningu um sál og líkama, sem heldur því fram að sérhverju sálrænu
(andlegu) ástandi samsvari eitthvert líkamlegt ástand.27 Þrátt fyrir
ntuninn, er augljós skyldleiki milli þessara síðari röksemda og þeirra
röksemda Plótínosar sem við höfum verið að skoða og hvorug þeirra
er beint eða óbeint hugsuð út frá sérstökum aðgangi eða áreiðanleika.
Þannig hygg ég að ástæður Plótínosar fyrir því að hafna efnishyggju,
sem eru að minnsta kosti að hluta til samstofna við Descartes, séu enn
við lýði á okkar dögum.
IV
Oft hefur verið bent á hliðstæður milli heimspeki Descartes og
platonisma. í samanburði við flesta skólaspekinga síns tíma eða menn
26 Um hugmyndir heilags Ágústínusar um sálina og rætur þeirra sjá A. C. Lloyd,
„Nosce teipsum and Conscientia", Archiv fiir Geschichte der Philosophie 44,
[1964], s. 188-200.
27 Sjá Jerome Shaffer, „Could Mental States Be Brain Processes?" í Journal of
Pltilosophy 58 (1961), s. 815-16.