Dvöl - 01.04.1940, Page 14

Dvöl - 01.04.1940, Page 14
92 DVOL öll þessi atvik væru hugarfóstur. Stundum varð endurminningin um auðmýkingu hans svo lifandi, að hún olli honum líkamlegra þján- inga og skjálfta. Það var tekið að bregða birtu. í gráu og fjólubláu rökkurskininu þrýstu elskendurnir sér fastar hver að öðrum og föðmuðust ófeimnari undir trjánum. Götuljósin loguðu eins og gulir ljósastrengir í vaxandi rökkrinu. Hátt uppi á kvöldhimn- inum lýsti silfurhvít rönd af nýju tungli. Honum fannst hann vera gæfusnauðari og einmanalegri en nokkru sinni fyrr. Hendin hafði bólgnað og verk- urinn í bitinu aukizt. Hann fór út í garðinn og gekk niður Oxford Street, þangað til hann fann lækni. Þegar búið var að hreinsa og binda um sárið, fór hann inn á testofu og bað um eitt linsoðið egg og eina könnu af ,,mokka“, en það hljóm- aði eins og latína í skilningsdauf- um eyrum afgreiðslustúlkunnar. Hann varð því að beita hinni gömlu aðferð til þess að gera sig skiljan- legan og bað um einn bo-bo-olla af ka-ka-affi. „Þér haldið víst, að ég sé slæp- ingi eða betlari.“ Þannig hefði hann átt að svara augnatilliti hennar, með þóttafullri gremju. „Þér hafið móðgað mig. Ef þér væruð karl- maður, mundi ég slá yður í götuna. Takið aftur þessa saurugu peninga yðar.“ En eftir þetta, hugsaði hann, hefði hann tæplega getað vænzt þess að verða vinur þeirra. Við nán- ari íhugun komst hann að þeirri niðurstöðu, að það myndi ekki hafa leitt til neins góðs, þótt hann hefði reiðzt. „Hafið þér meitt yður í hend- inni?“ spurði stúlkan vingjarnlega, um leið og hún setti eggið og mokkakönnuna fyrir framan hann. Peter kinkaði kolli. „Þ-það b-beit mig h-hvolpur.“ Orðin hrukku loks út úr honum eins og sprenging. Hann roðnaði við endurminning- una um smán þá, sem hann hafði orðið fyrir. Já, þær höfðu litið á hann sem betlara. Þær höfðu farið með hann eins og hann hefði í raun og veru ekki verið til, eins og hann hefði aðeins verið verk- færi, sem hægt var að taka í þjón- ustu sína fyrir borgun, og svo þegar reikningurinn var greiddur, var það gleymt og grafið. Endurminn- ingin um auðmýktina var svo lif- andi, meðvitundin um hana svo djúp og alger, að hún verkaði ekki aðeins á hugann, heldur einnig á líkamann. Hjartað sló ótt og þungt, honum var óglatt. Með miklum erfiðismunum tókst honum að koma niður egginu og mokkakaff- inu. Þegar hann hafði lokið við að borða, fór hann út. Endurminning- in um kvalafullan raunveruleikann ásótti hann, og ímyndunarafl hans gerði æðisgengnar tilraunir til að milda hann og umskapa, og þó að hann væri dauðþreyttur, hóf hann aö nýju hið tilgangslausa ráf sitt. Hann gekk niður Oxford Street,

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.