Dvöl - 01.04.1940, Blaðsíða 42

Dvöl - 01.04.1940, Blaðsíða 42
120 DVOL fyrir,“ segir hann aftur. „Ég geri ekki ráð fyrir að við sjáumst oftar.“ Allt í einu finn ég, að hin brúnu augu Maríu hvíla á mér. Þau eru orðin stór og rök, og hún hefir aldrei áður horft þannig á mig. Hún lyftir höfðinu og stendur upp. Golan leggur þunnan kjólinn þétt að líkama hennar. Ég segi við gamla manninn, mjög hægt og lágt: „Nei, ég geri heldur ekki ráð fyrir því. Við munum ekki sjást aftur“. En hann fer ekki ennþá, ég veit að hann ætlar ekki að fara. „Þú verður að gæla við bleika folann fyrir mig, og þú mátt ekki ofbjóða honum með erfiði“, segir María hægt. „Mamma bað mig líka að þakka þér fyrir mjólkina. Hún er farin að hátta núna. Við verðum komin til Labiau í fyrramálið, þeg- ar þú kemur út á akurinn með hrossin.“ Faðir hennar tekur enn einu sinni í hendina á mér og þrýstir hana innilega. En hann stendur samt kyrr og horfir framhjá mér, út í nóttina. María lýtur höfði aft- ur. Ég strýk um handlegg hennar. Á hönd mína fellur daggardropi — eða tár. Gamli maðurinn snýr sér hægt við, leggur af stað og dregur Maríu með sér. Af henni er sterk heylykt. Hún lítur við, einu sinni enn. Það hvessir. Ég geng yfir landgöngutréð og heyri að gamla konan nöldrar yfir því að vera vakin. En María virðist hátta, án þess að segja orð, 3Þ tg> Hið ákjósanlega i*íki „Hvert er hið ókjósanlega ríki?“ spurði Periander sjö vitringa Grikklands. Þeir svöruðu: 1. Solon: Þar sem óréttlæti við hinn minnsta smælingja er órétt- læti við alla heildina. 2. Bais: Þar sem ekkert er lögum æðra. 3. Thales: Þar sem hvorki hinir auðugu eru of auðugir, né hinir fátæku of fátækir. 4. Anacliaris: Þar sem heiðar- leikur er virtur og vansæmd fyrir- litin. 5. Pittacus: Þar sem hinir góðu eru ætíð upphafnir, en aldrei hinir illu. 6. Cleobulus: Þar sem borgar- arnir óttast ásökun meira en hegn- ingu. 7. Chilo: Þar sem lögin njóta meiri virðingar en lýðskrumararn- ir, og eru sterkari en þeir. <S> «5 Engið er rakt. Vindurinn skekur stráin. Nýjar stjörnur eru komnar í ljós. Ég nem staðar við brunninn og lít við, en báturinn er horfinn mér í myrkrið. Svo fer ég inn í hesthúsið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.