Dvöl - 01.04.1940, Page 38

Dvöl - 01.04.1940, Page 38
116 DVÖL ist hlátur Maríu koma úr fjar- lægð. Ég dregst með hægð upp rakan bakkann, upp á engið .... Ég veit, að María er einmana og á margar þrár, þrár, sem æskan ein þekkir. Enn þekkir hún ekki sársauka lífsins, en hún mun kom- ast í kynni við hann fyrr en varir, þótt hún sé falleg. Ég veit þetta, og það hryggir mig. Tilfinningar mín- ar eru núna einmitt þær sömu og þær voru, þegar Páll dó úr tær- ingunni. Faðir hans átti ekki pen- inga til að senda hann upp í fjöll- in, út í sólskinið. Móðirin grét lengi yfir litla líkinu. Vatnsdroparnir falla af mér á andlit Maríu. Þeir eru eins og tár, en ekki sorgartár, því að hún bros- ir. Ég vil hafa vald yfir sjálfum mér. Ef ég get það ekki, ef það, hvernig hún situr frammi fyrir mér, vekur mér of mikla þrá til hennar, þá rek ég hana frá mér með harðri hendi. Farðu aftur út í bátinn þinn, ætla ég að segja. Hún mun ekki skilja það. Hún verður niðurlút, dálítil hrukka myndast á enni hennar við rætur nefsins og hún bítur fast saman vörunum. Svo fer hún, án þess að líta við, og þá mun ég fá ákafa löngun til að sjá hana gráta, svo að ég eigi minningu að flýja til. „Ég verð að fara að sækja hross- in,“ segi ég þegar ég er komin í fötin. „Ég kem út í bátinn eftir kvöldmatinn og reyki eina pípu eða svo með honum föður þínum.“ „Nei, ég kem með þér,“ segir hún og stendur upp. Svo göngum við gegn um hávaxið grasið í átt- ina til skógarins, en girðingin er rétt við hann. Hrossin eru komin að hrörlega hliðinu og standa þar. Brúni geldingurinn hefir lagt hausinn yfir makkann á jörpu merinni. Þykk, græn froða lekur út úr honum niður í fagurbrúnt fax hennar. Hrossin horfa á okk- ur hlýlegum vinaraugum. Nasir þeirra titra fagnandi. Bleiki fol- inn einn virðist vera í illu skapi. Hann tannar í sífellu runna, sem hann hefir þó engin not af. Þög- ull lævirki flýgur upp og hverfur út í rökkrið, sem er að færast yfir. Við girðinguna er skuggsælla, af því að hún er rétt við skóginn. Það er þegar orðið hálfdimmt í beinum skógargötunum. Ég losa um hliðgrindina og hross- in troðast fram í hliðið. Ég segi við Maríu: „Hverju þeirra vilt þú ríða?“ „Bleika folanum,“ svarar hún hvatlega. „Taktu hann þá. En ef hann setur þig af sér, þá er þér sjálfri um að kenna.“ Bleiki folinn stendur kyrr og lyftir höfðinu, þegar María nálg- ast. Húsbóndi minn hefir sagt mér, að graðhestar geri greinarmun á konum og körlum. Ég hata bleika folann. María styður höndunum á bak hans og ég tek um þrek- legar mjaðmir hennar. Hún er létt. Folinn eys og það gleður mig. María grípur höndunum í fax hans.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.