Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 8

Dvöl - 01.04.1944, Blaðsíða 8
36 D V O I upp á sansana. Það virðist eitthvað gutla í lögginni." „Maður guðs og lifandi," sagði ísak og sparn við tunnunni fæti. „Hún er sneisafull af ilmandi víni. En sú miskunn!" „Við skulum ekki hafa orð um það, en snúa okkur að efninu,“ sagði Bensi þá. Og það er ekki að orðlengja. Við settumst allir að sumbli við glaum og gleði og drukkum alla nóttina sleitulaust, ég mest allra. Mikið var, hvað ég þoldi! En morguninn eftir sá ég allt tvöfallt, þekkti ekki liti, tók annan hest í misgripum fyrir minn og reið af stað. En eigandi hestsins og fleiri riðu á eftir mér og báru á mig stuld. Ég mótmælti og sagði, að hestur væri hestur. Svo færðu þeir mér minn hest, og þekkti ég hann þá.“ „Þetta kalla ég ekki að drekka sér til óbóta,“ sagði ég til að ginna hann til frekari frásagna. „Öðru nær“, sagði Karl mikli af glettni og fjöri. „í þetta sinn drakk ég mér til bóta og bjargræð- is. En öðru sinni var ég hætt kom- inn. Þá lagði ég í Straumá, þar sem ég kom að henni. En áin var í vexti með jakahlaupi og langt frá því að vera reið. Ég lenti af hestinum og flaut í hálftíma fyrir straumi, en varð loks bjargað af Benjamín á Vöðlum og lífgaður við eftir langa mæðu. Þá var ég hætt- ast kominn á ævinni, því að vatn- ið var baneitraður korgur, og lagði af því megna brennisteinssvækju. Seinna þann sama dag steyptist ég í læk einn og hresstist mjög við, því að það vatn var svalt og hreint. Um kvöldið féll ég af baki og lá lengi með fótinn fastan í ístaðinu, og dró hesturinn mig á eftir sér.“ „Varð þér nokkuð meint við hnjaskið?“ spurði ég og gat varla varizt hlátri. „Og sei sei, nei,“ svaraði Karl, „það get ég ekki talið. Seinna fékk ég einskonar kýghósta og hóstaði upp úr mér sandi og leir nokkurn tíma.“ Ég sá enga ástæðu til að mót- mæla þessum óvenjulegu stað- reyndum. Karl mikli var orðinn glaðvær og gamansamur, léttur í spori og ljúfur í viðmóti. Honum veittist furðu auðvelt að bera sína þungu byrði. Leiðin sóttist vel. Stundum fékk hann sér sopa og bauð mér að dreypa á. En ég var templari og mátti ekki neyta víns. Við hvíldum okkur góða stund á miðri heiðinni. Til þessa hafði veörið verið sæmilegt, en tók nú að fjúka og herða frostið. „Er þér ekki kalt?“ spurði Karl vingjarnlega og leit á hattkúfinn minn og harða flibbann. „Nei,“ svaraði ég ákveðið, en gat þó ekki varizt hrolli og bretti jakka- kraganum upp, stóð á fætur og við héldum áfram. — Veðrið versn- aði með hverri stundu sem leið. Mér kólnaði meir og meir. Jafn- framt fór ég að finna til óvenju-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.